Alex vill fara til PSG

Alex, varnarmaður Chelsea, vill ganga í raðir Paris Saint German en franska félagið á þó eftir að leggja fram tilboð í leikmanninn.

QPR hefur verið á eftir Alex en nú þykir líklegra að Brasilíumaðurinn fari til Frakklands.

Alex átti í viðrðæum við PSG í gær en félagið á ennþá eftir að ná samkomulagi við Chelsea. Ljóst er að Alex er á förum frá Chelsea en talið er að félagið vilji 4,2 milljónir punda fyrir hann.

,,Við höfum ekki fengið neitt formlegt tilboð frá PSG," sagði Giuliano Bertolucci umboðsmaður Alex.

,,Á þessu stigi eru einungis viðræður í gangi en þeir hafa byrjað vel. Alex vill ólmur ganga til liðs við PSG."

ÞS.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=120609#ixzz1kabbmpA8


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar