Cech:sóttum of mikið

Petr Cech, markvörður Chelsea, sagði það hefði komið liði sínu í koll að vera einum of sókndjarft í leiknum í Napólí í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld. Napoli vann 3:1 eftir að Juan Mata kom Chelsea yfir snemma leiks.

„Við náðum 1:0 forystu sem var mjög gott en því miður fengum við á okkur mark í kjölfarið og svo annað í blálokin á fyrri hálfleik. Við hefðum átt að halda jöfnu í hálfleik og með þá stöðu hefði seinni hálfleikurinn verið allt öðruvísi. En þetta seinna mark þeirra þýddi að þeir gátu legið til baka og beðið eftir því að ná skyndisóknum. Þeir fengu síðan sitt færi og skoruðu," sagði Cech á fréttamannafundi eftir leikinn.

„Við sóttum mikið vegna þess hvernig leikurinn þróaðist. Við ætluðum ekki að sækja á of mörgum mönnum en í hvert skipti sem við sóttum sköpuðum við okkur færi og vorum líklegir til að skora. Stundum sóttum við of mikið og fengum á okkur skyndisóknir í staðinn, en við lærum af því fyrir seinni leikinn. Nú er það okkar að vinna upp þennan tveggja marka mun.

Markið sem við skoruðum á útivelli var mikilvægt og við sjáum til í seinni leiknum hvort það skiptir máli eða ekki. Ef við vinnum upp forskotið og förum áfram var þetta mark ákaflega dýrmætt," sagði Petr Cech (mbl.is)

BB


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar