Hópferð á Chelsea vs QPR

h vs l.jpg

Fyrirhuguð er hópferð á leik Chelsea og Queens Park Rangers í Úrvalsdeildinni ensku en leikurinn fer fram á Stamford Bridge sunnudaginn 29. apríl n.k. og hefst hann kl. 12:30.
 
Flogið verður með Icelandair frá Keflavíkurflugvelli föstudaginn 27. apríl kl. 07:40 og til baka frá Heathrowflugvelli mánudagskvöldið 30. apríl kl. 21:10.
 
Gist verður í þrjár í nætur á The Millennium & Copthorne Hotels at Chelsea Football Club.
 
Innifalið í hótelpakkanum, auk gistingar, er eftirtalið:
 
Miði í West Upper á leikinn (með fyrirvara um staðsetningu) – Leikskrá – Þriggja rétta kvöldverður að kvöldi komudags ásamt hálfri flösku af víni hússins auk flösku af “Sparkle- eða Stillwater” – Morgunverður alla morgna dvalarinnar – Skoðunarferð um Stamford Bridge - Aðgangskort í Chelsea Museum.
 
hughes.jpg

Möguleiki er á að setja 10.000 vildarpunkta upp í fargjaldið og yrðu þeir þá ígildi sex þúsund króna, einnig fá félagsmenn 10% af andvirði hótelpakkans í afslátt í formi inneignar hjá Chelsea Megastore ef þeir gæta þess að láta strauja félagsskírteinið sitt við útskráningu af hótelinu.
 
Áætlað heildarverð, ef næg þátttaka fæst, er frá kr. 104.000.- á mann og er þá miðað við tvo fullorðna í 2ja manna herbergi.
 
Ef áhugi er fyrir hendi verður hægt, gegn vægu gjaldi, að sjá fólki fyrir flutningi á milli Heathrow og hótels við komu til London og svo frá hóteli til Heathrow við brottför.

Nánari upplýsingar veitir formaður Chelseaklúbbsins í síma 864 6205.
 
Þeir sem hafa hug á að taka þátt í ferðinni eru beðnir um að tilkynna þátttöku til stjórnar Chelseaklúbbsins hið fyrsta í síma 864 6205 eða á netfangi chelsea.is@simnet.is
 
Stjórn Chelseaklúbbsins á Íslandi.


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar