John Terry ekki með gegn Man Utd

terry.jpgJohn Terry verður ekki með Chelsea á sunnudaginn þegar liðið mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni vegna hnémeiðsla.

Kappinn hefur verið mikið í umræðunni síðustu vikur og í morgun var hann sviptur fyrirliðabandinu hjá landsliðinu.

Enskir fjölmiðlar hafa mikið verið að ræða það hvort Rio Ferdinand, bróðir Antons, myndi taka í hönd John Terry fyrir leikinn á sunnudag eða ekki en nú er víst að þeir munu ekki takast í hendur vegna meiðsla Terry.

Það verður að teljast líklegt að Andre Villas-Boas leyfi Gary Cahill að taka stöðu Terry í miðverðum og leika sinn fyrsta leik með Chelsea. Ashley Cole verður einnig í leikbanni og AVB þarf því líka að ákveða hvort Jose Bosingwa eða Ryan Bertrand byrji í vinstri bakverðinum í hans stað.

HOG


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar