JT áfram fyrirliði Chelsea.. að sjálfsögðu
Andre-Villas Boas knattspyrnustjóri Chelsea staðfesti það á vikulegum fundi með fréttamönnum í dag að John Terry yrði áfram fyrirliði Chelsea. Terry var fyrr í dag sviptur fyrirliðastöðunni hjá enska landsliðinu þar til réttarhöldin hafa farið fram í kærumáli Antons Ferdinands á hendur honum fyrir meint kynþáttaníð.
„Þetta var ákvörðun enska knattspyrnusambandsins. Ég er ekki sammála henni. John verður áfram fyrirliði Chelsea,“ sagði Villas-Boas.
Villas-Boas greindi frá því að Terry yrði ekki með í leiknum gegn Manchester United á sunnudaginn vegna meiðsla í hné og hann missti hugsanlega af leiknum á móti Everton um aðra helgi. (mbl.is)
BB
Athugasemdir:
Athugasemdir:
