Komdu sæll og blessaður.....
Anton Ferdinand og John Terry mætast á morgun í enska bikarnum þegar QPR leikur gegn Chelsea. Það verður í fyrsta sinn síðan Ferdinand sakaði Terry um kynþáttaníð í sinn garð.
Málið verður tekið fyrir í enska dómskerfinu í næstu viku.
Mikið er gert úr því í fjölmiðlum hvort Ferdinand muni taka í höndina á Terry fyrir leikinn.
Ferdinand íhugar víst að taka ekki í höndina á Terry. Mark Hughes, knattspyrnustjóri QPR, ætlar ekki að neyða hann til að gera það, segir það algjörlega vera hans ákvörðun.
Eftirminnilegt er þegar Wayne Bridge neitaði að taka í höndina á Terry á sínum tíma.
ÞS.
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=120646#ixzz1kgNVRKaZ
Athugasemdir:
Athugasemdir:
