Mata: Þurfum að bæta okkur

Juan-Mata-005.jpg

Juan Mata vonast til þess að liðið fari að spila betur, en Chelsea tekur á móti Manchester United í deildinni á morgun.

Chelsea hefur ekki spilað vel að undanförnu. Síðustu tveir leikir hafa endað með jafntefli en þeir voru gegn Norwich og Swansea. Liðið er nú 12 stigum á eftir Manchester City og Manchester United og er nánast búið að missa af titilbaráttunni.

Spánverjinn segir að leikmenn Chelsea þurfa að bregðast skjótt við og komast á beinu brautina aftur.

“Frammistaða okkar er alls ekki góð þessa dagana og við erum mjög ósáttir með hana. Við erum ekki að spila nógu vel í deildinni og þurfum að bregðast fljótt við, það er mikilvægasta verkefni okkar núna,” sagði Spánverjinn snjalli.

“Það er ekkert ómögulegt í fótbolta en í augnablikinu eru alltof mörg stið á milli okkar og Manchester-liðanna, þess vegna er leikurinn gegn United mjög mikilvægur fyrir liðið.”


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar