Myrkir tímar II
Myrkir tímar II

Breytingar vofðu yfir á Stamford Bridge. Í lok leiktíðar 1980-81 hafði verið mikill órói meðal stuðningsmanna Chelsea sem heimtuðu afsögn stjórnarformannsins, Brians Mears. Þeim varð að ósk sinni sumarið 1981 en þó ekki fyrr en Mears hafði ráðið John Neal sem knattspyrnustjóra í stað Geoffs „heimsmeistara“ Hurst. Við stjórnarformannsstöðunni tók Charles Gerald John Cadogan vísigreifi eða „Viscount“ af Chelsea (síðar Cadogan jarl) – vellauðugur landeigandi og „virtur þótt hann væri kallaður eftir kextegund“ eins og einhver sagði (Viscount er rómað kex á Bretlandi).
John Neal var ekki öfundsverður af starfi sínu – bullandi tap var á félaginu, leikmannahópnum vart sprottin grön fyrir utan þann gamla gráskeggjaða jálk Micky Droy og kexgreifinn ekki á þeim buxunum að hætta eigin fé í svo vafasamt fyrirtæki sem Chelsea Football Club. Svo rammt kvað að velleklunni (peningaskortinum, fyrir þá sem eru of ungir til að hafa verið samtíða Snorra Sturlusyni) að í deildabikarleik gegn fyrstudeildarliði Southampton á Brúnni í október 1981 tóku áhorfendur eftir því að rafmagnsmarkataflan var horfin. Chelsea hafði leigt hana af fyrirtækinu Sefact en varð að skila henni þegar ekki var til nægilegt fé til að halda henni gangandi. Stuðningsmönnum var að vísu lofað því að klúbburinn mundi „gera allt sem unnt væri til að afla fjár svo að mætti útvega nýja töflu“! Sumir stuðningsmenn höfðu reyndar þá skýringu á hvarfi töflunnar að ljósakallarnir á henni, sem stigu trylltan dans í hvert sinn sem Chelsea skoraði, hefðu verið orðnir hundleiðir á aðgerðarleysinu undanfarnar leiktíðir.

Chelsea var eðli sínu trútt þessa leiktíð („það eina stöðuga hjá Chelsea FC er óstöðugleikinn“) því að þrátt fyrir köflótt gengi í deildinni tókst liðinu að slá Evrópumeistara Liverpool út í 5. umferð ensku bikarkeppninnar – ekki lítið afrek þar sem Púlararnir höfðu á að skipa ekki ómerkari mönnum en Bruce „tippara“ Grobbelaar, Alan Hansen, Mark Lawrenson, „King Kenny“, Ian „að spila á Ítalíu er eins og að spila í útlöndum“ Rush og Terry McDermott. Annað marka Chelsea í 2:0 sigri gerði kantmaðurinn ungi Peter Rhoades-Brown sem var þekktur fyrir að hlaupa af sér boltann.
Til þess að reyna að virkja helsta hæfileika Péturs hins unga, hraðann, sagði John Neal við hann: „Þú hleypur eins hratt og þú getur upp vinstri kantinn – helst með boltann – og rétt áður en þú kemur að hornfánanum áttu að beygja til hægri.“ Tilsögnin dugði í þetta sinn og Evrópumeistarar Liverpool höfðu ekki roð við honum. En auðvitað datt Chelsea út úr bikarkeppninni í næstu umferð – tapaði fyrir bikarmeisturum Tottenham á Brúnni, 3:2, þar sem tveir framtíðarleikmenn Chelsea, Micky Hazard og Glenn Hoddle, gerðu sitt markið hvor fyrir Tottarana. Tottenham varði síðan bikarmeistaratitilinn um vorið.
Leiktíðin olli að sjálfsögðu vonbrigðum eins og oft áður. Chelsea endaði aftur í 12. sæti og mátti sjá á eftir nágrannaliðunum Luton og Watford upp í 1. deild. Svo voru stuðningsmenn þreyttir á því sem liðið bauð upp á að einungis 6.196 áhorfendur borguðu inn á völlinn til að sjá Chelsea etja kappi við Cambridge 7. apríl 1982 – aldrei höfðu færri horft á deildarleik á Brúnni ef undan er skilið fyrsta starfsár klúbbsins og hafa aldrei verið færri síðan þótt stundum hafi legið nærri leiktíðina 1982–83.
Hins 1. apríl 1982 verður þó lengi minnst meðal stuðningsmanna Chelsea. Þá gerðist nokkuð sem ýmsir héldu í fyrstu að væri aprílgabb en reyndist þó hin fúlasta alvara: Kenneth nokkur William Bates seildist djúpt í buxnavasana og keypti Chelsea Football Club á 1 sterlingspund og og tók við stjórnarformannsstöðunni af kexgreifanum. (Kexið hófst ekki aftur til vegs og virðingar í enska boltanum fyrr en Íslendingar með „kexbaróninn“ í broddi fylkingar keyptu West Ham). Þetta skipti sköpum fyrir félagið sem annars hefði að öllum líkindum verið steypt saman við QPR Ha Ha og misst völlinn að eilífu. Það er þó önnur saga sem ekki verður rakin að þessu sinni.
En áður en birta fór til hjá klúbbnum syrti enn í álinn ef sortinn var ekki nægur fyrir. Meira um það síðar.

KEG
Athugasemdir:
Athugasemdir:
