Og þá gerist það aftur
Og þá gerist það aftur
Einhverjir sem lesa hérna muna hugsanlega eftir að ég skrifaði pistil fyrir leik Liverpool FC. og Chelsea sem var í nóvember síðast liðnum. Ekki ætla ég að ergja neinn með endurtekingu á honum. Ég ætla bara aðeins að tjá mig um stöðu félagana tveggja, eins og þau líta út í mínum augum. Fyrst er samt ekki annað hægt að spjalla pínulítið um einn ákveðinn dreng.
„því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur“ ( Lúkas 2, 8)
Það var keppnistímabilið 2005-2006 að ég kveikti á sjónvarpinu eitt sunnudagskvöldið og bjó mig undir klassíska Barcelona slátrun á uppáhalds spænska liðinu mínu. En það var nú eitthvað annað... Þá var nýlega búið að skipta um fyrirliða, í annars afar stabílu liði Atletico Madrid. Drengurinn sem ég var margoft búinn að lesa um en hafði af einhverjum ástæðum aldrei séð almennilega til sprakk út þetta kvöld.
Það var þarna sem ég kynntist Fernando Torres. Og mikið ofboðslega var hann góður. Hann kom að frá vinstri, hann kom frá hægri, tók menn á. Hann gat gert allt við bolta nema kannski látið hann tala. Að hann myndi spila fyrir uppáhaldsliðið mitt var þarna ennþá fjarlægur draumur. Það og pilturinn var nú mikil bógur að sjá, óttalega vöðvarýr eitthvað og ekki var ég viss um að þyldi við í hinni hörðu ensku úrvalsdeild.
Og svo mætti hann...

„Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla“ (jesaja 9, 6)
Vorið 2007 blasti lífið við Liverpool FC. Liðið var aftur búið að rígnegla sig í hóp sterkustu liða álfunar með því að leika í annað skiptið á 3 árum í úrslitaleik meistaradeildarinnar og loksins voru komnir eigendur sem höfðu fjárhagslega burði til að keppa við andstæðingana í deildinni. Sjálfur fésbókaði ég og lét hvern sem er vita af því að minn draumaliðsmaður væri snoppufríður Argentínói sem þá um vorið hafði einn síns liðs haldið West Ham í úrvalsdeildinni. Sú ósk mín rættist ekki, en í staðinn fengum við hinn Spænskættaða Torres. Var ég spenntur? Auðvitað! En efasemdir hafði ég. Tevez hafði sannað sig á Englandi sem alger nagli og var að mínum dómi mun öruggari kaup en Íberíska undrabarnið.
Það tók hann korter að slökkva í mínum efasemdum. Ekki bara skoraði hann heldur skoraði hann á móti hverjum? Jú þið vitið... Og svo bara hætti drengurinn ekki! Mörkin þetta tímabil urðu tuttuguogguðmávitahvað, og þau voru allskonar. Liverpool menn og Torres breyttu sambandsstatusnum sínum úr „það er flókið“ í „í sambandi“. Það hefur alltaf verið allt að því pervetískt samband milli Liverpool stuðningsmanna og „níunar“! Og fá lið eða enginn eru jafn góðu vön, þegar „níur“ eru annars vegar og Liverpool FC. Keegan, Rush, Aldridge, Fowler, Owen og loks Torres. (OK! Þeir voru kannski ekki allir „níur“ en þið skiljið mig!)
Þetta sama tímabil fengum við einnig að kynnast meiddum Torres í fyrsta skiptið, en það er önnur saga...
„En réttláta refsingu munu þeir hljóta fyrir hvort tveggja, bæði rangar hugmyndir um Guð og fyrir að aðhyllast skurðgoðin, sverja meinsæri með svikum og fyrirlíta hið heilaga.“ (speki salómons 14, 13)
Við skulum koma einu hérna alveg á dauðhreint. Fernando Torres er rosalega rosalega rosalega góður í fótbolta. Hann er svo góður í fótbolta að mig hefur oft á tíðum svimað yfir hæfileikunum hans. Guð má vita að Chelsea FC hefur margoft fengið að kenna á refsivendi hans. Það þarf ég ekkert að minna ykkur á. Fyrir mánuði síðan hefði ég vaðið eld og brennisteinn fyrir Fernando Torres. Fyrir mér var Fernando Torres hafinn yfir alla gagnrýni. Ef Heilagur Torres hefði birst mér frá himnum og skipað mér að setjast meðal baktalandi Chelsea manna á Ölveri (Þið 12 vitið hver þið eruð) og verja heilagt nafn hans, hefði ég gert það. Meir að segja klæðalaust!
Eeeeeeeeen.... Gallalaus er hann nú ekki samt...

*Fyrir það fyrsta þá er hann næstum stanslaust meiddur. Við Liverpool menn erum konungar orðsins „ef“. Ef við vorum góðir í því fyrir Torres, þá hefur sambúð okkar við þetta orð breyst í einhverskonar listrænan ballett eftir kynni okkar af honum.
*Hann lítur út eins og fermingarstelpa, sem er út af fyrir sig enginn glæpur og beinlínis æskilegt EF maður er stúlka á fermingarári. (Það trúir því væntanlega enginn hvað er gott að geta loksins viðurkennd þetta!)
*Hann er ekki „team-player“ Torres spilar fyrir aðeins eitt og það er Fernado Torres. Ef hann fagnar marki frá öðrum þá er það vegna þess að hann hefur átt einhvern hlut í því sjálfur.
*Hann er ehhhh. Hmmmm.... VÆLARI!!!!!!! Mótlæti þolir hann ekki. Sem er auðvitað enginn glæpur heldur EF það er ekki mótlæti.
*2005 vinnur Liverpool meistardeildina
2006 vinnur Liverpool FA cup
2007 Liverpool kemst í úrslit Meistaradeildarinnar
haustið 2007 kemur Torres. Síðan hefur Liverpool unnið.... ehhhhh. Hmmmm?
,,Vei þér, eyðandi, sem sjálfum hefur ekki verið eytt, vei þér, svikari sem enginn hefur svikið. Þegar þú hefur lokið við að eyða verður þér eytt og þegar þú hættir að svíkja verður þú sjálfur svikinn.“ (Jesaja 33, 1)
Nú hljóta einhverjir að spyrja sig „Afhverju eruð þið Púllarar svona sárir? Var hann ekki líka alltaf meiddur? Var hann ekki sívælandi? Fenguð þið ekki gommu af pening? Voruð það ekki þið sem tókuð Carroll úr móðurarmi fyrir svívirðilega upphæð? Þið Púllarar eruð hræsnarar! Ég fyrirlít þetta „næstumþví“ væl ykkar og þetta andskotans lag sem þið baulið við hvert tækifæri!!!“Við sumu er svarið kannski já. Sumt er hugsanlega rétt sem þið segið.
En þá kemur hið óræða...

Við elskuðum Torres og við trúðum því að Torres elskaði okkur. Manst þú lesandi góður hvað það þýðir að elska? Hefur þú lesandi góður elskað og komist að því að hin gagnkvæma ást var einungis tál? Hefur þú lesandi góður elskað eitthvað svo rosalegt heitt að jafnvel svæsnustu dýfur hjá C. Ronaldo og Drogba voru einungis hjákátlegt píp í illum heimi fótboltans? Rétt eins Símon Pétur forðum daga afneitaði Jesú í þrígang, hafði Torres heitbundist okkur í þrígang og jafnvel oftar. Í heimi þar sem bókstaflega allt virðist falt fyrir nokkra silfurpeninga var Torres í huga okkar ferskur andblær. Þarna var á ferðinni sannkallaður gulldrengur, „þessi sko. Þessi drengur er ekki falur fyrir peninga, hann spilar fyrir mig og hann mun gera það að eilífu, samband okkar er hafið yfir peninga og frægðarupphefðir. Hann spilar fyrir okkur og hann spilar fyrir ástina á klúbbnum. Það vorum við sem kenndum honum að elska Liverpool FC.“
Þetta tuggðum við ofan í hvern annan, Torres og við, og tuggðum þetta svo mikið og svo fast að beiskjubragðið verður viðloðandi vit okkar í óratíma.
Torres elskaði okkur ekki. Hann elskaði vissulega ást okkar, en okkur Púllara elskaði hann aldrei. Torres var svikula kærastan sem þóttist fá fullnægingu í kynlífinu, en rauk svo á einkamal.is þegar við vorum sofnaðir í von um meiri ást til að elska.
Megi Heilagur Fowler fyrirgefa barnslega einfeldni okkar!

„Hann sagði fyrir um allt sem verða mun um alla framtíð, hulda atburði sem enn eru eigi orðnir.“ (Síraksbók 48 , 25)
Hvernig mun Torres vegna hjá Chelsea FC?
Það fer að mestu leyti eftir ykkur kæru stuðningsmenn Chelsea. Hvort að þið kaupið fagurgalan og af honum verður sko nóg næstu misserinn. Hann mun tala um hvað Stuðningsmenn Chelsea séu einstakir, hversu frábært það sé að spila með öllum þessum heimsþekktu nöfnum, að það sé einstök tilfinning að spila á Stamford Bridge, að honum finnist hann vera hluti af einhverju sérstöku og blablablablablablablabla........etcetcetc.....

Torres mun án efa ekki leiðast að vera loksins kominn í félagsskap sem túlkar leiðindahugtök eins og heiðarleika á ansi frjálslegan máta. Torres þrífst ekki nema vera dáður og dýrkaður. Og hann þolir ekki samkeppni um athyglina. Sem verður vitaskuld ekkert vandamál þegar Roman rífur upp veskið næsta sumar! Er það nokkuð annars? Ferill Torres hjá Chelsea mun í besta falli vera jafn sorglegur og ferill Shevchenko hjá Chelsea. Munurinn á Torres og Shevchenko er sá að Shevchenko er karlmaður en Torres er kveif. Innan 18 mánaða mun Torres átta sig á því að þetta er ekki eins og hann hefur séð fyrir sér. Og hann mun enda þar sem hann byrjaði. Í meðvirkum móðurfaðmi Atletico.
„Óvænt og ógnandi mun hann standa andspænis yður. Vægðarlaus dómur mun ganga yfir valdhafana.“ (speki Salómons 6, 5)
Þegar ég skrifaði um fyrri leik liðanna á þessu tímabili var staðan aldeilis önnur. Þá stefndi í að Chelsea væri að framkvæma deyfingarlausan keisaraskurð á þessu tímabili. Á sama tíma var Roy nokkur Hodgson að nudda á sér andlitið og reyna að finna einhver töfrabrögð til að breyta áðurnefndum Torres í Bobby Zamora. Okkur Liverpool mönnum til mikillar gleði þá opinberaðist veikleiki Chelsea heldur betur í þessum leik. Blessuð breiddin.
Með Júrí Zhirkov og Obi Mikel á miðjunni gat ekki einu sinni hið vonlausa Liverpool lið klikkað! Þið verðið að fyrirgefa en ég bara man ekki hver skoraði mörkin. Það verða allt önnur lið sem mætast á morgun. Chelsea er náttúrulega að reyna að finna sitt Chelsea tempó aftur. Titillinn er horfinn ykkur, það er því miður bara þannig, og ef Chelsea kemst ekki almennilega á lappinar mjög fljótlega þá verður 4 sætið komið í allsvakalega hættu. Og á sunnudaginn fáiði síðasta liðið sem þið viljið mæta í heimsókn á Brúnna. Því risinn er að vakna... Torres spilar auðvitað ekki þennan leik, nema þá hugsanlega hluta af honum. Í hinu liðinu er menn sem hafa þurft að hlífa honum á æfingum í næstum 4 ár. Þetta veit Ancelotti og akkúrat núna er þetta að halda vöku fyrir Íberísku krúsidúllunni.
En Veruleikafirrtur er ég ekki. Ég er alveg meðvitaður um að Chelsea er liðið með völdin. Það eru betri leikmenn þar og taflan lýgur auðvitað ekki. Chelsea þarf ekkert Torres til að vinna þennan leik. Chelsea þarf bara að vera Chelsea.
En x-faktorinn í þessu er Kenny nokkur Dalglish. Þótt ótrúlegt megi virðast þá hefur hann eitthvað undarlegt lag á því að blása sínum mönnum eitthvert 8unda líf.

Fótbolti er sjálfstraust og ekkert nema sjálfstraust. Og af því hefur Dalglish feykinóg. Spurningin er kannski hvað á Chelsea mikið sjálfstraust eftir? Því tapið þið þessum leik eru einungis 6 stig sem skilja liðin að.
Fyrir mitt leyti spái ég þessum leik jafntefli. Bæði lið koma til með hugsa meir um að tapa ekki heldur en að sigra.
YNWA
Sigurjón Njarðarson
Athugasemdir:
Athugasemdir:
