Tveggja marka tap gegn Napoli

                               Napoli vs Chelsea í Meistaradeild Evrópu

Liðin voru þannig skipuð

Napoli: De Sanctis, Campagnaro, Cannavaro, Aronica, Maggio, Inler, Gargano, Zuniga, Hamsik, Lavezzi, Cavani. Varamenn: Rosati, Grava, Dossena, Dzemaili, Fernandez, Pandev, Britos.

Chelsea: Cech, Ivanovic, Cahill, Luiz, Bosingwa, Ramires, Meireles, Malouda, Sturridge, Drogba, Mata. Varamenn: Turnbull, Cole, Essien, Lampard, Torres, Mikel, Kalou.

 

Chelsea tapaði í kvöld fyrir Napolí 3-1 í fjörugum leik. Eftir miklar hremmingar liðsins undanfarnar vikur var mikilvægt fyrir liðið að vel tækist til í kvöld gegn frísku Napólí liði. Góð frammistaða hefði líka gefið AVB smávegis andrými fyrir næstu leiki liðsins.

Leikurinn byrjaði af miklum krafti, sérstaklega af hálfu heimamanna og á 10. mínútu fékk Cavani algjört dauðafæri eftir að vörn Chelsea hafði verið grátt leikinn en Cech varði meistaralega frá honum. 

Á 12. mínútu neyddist AVB að gera skiptingu þegar Bosingwa tognaði og var A.Cole sendur inn í hans stað.

Chelsea fór að komast meir inn í leikinn og leikmenn fóru að halda boltanum innan liðsins og sóknir liðsins urðu betri. Á 28. skoraði Juan Mata eftir hörmuleg mistök í vörn Napoli, boltinn hrökk fyrir fætur hans efir að varnarmaður hafði kiksað og skoraði af öryggi framhjá markverði heimamanna.

Áfram hélt fjörið og áttu bæði lið vænlegar sóknir þar sem varnir beggja liða virtust gjörsamlega úti á þekju á köflum. Ekki liðu nema tíu mínútur frá marki Chelsea þegar heimamenn voru búnir að jafna. Var þar að verki argentíski sóknarmaðurinn  Lavezzi. Í markinu var vörnin illa á verði og varnarleikur Cahill í markinu afleitur, hann lét teyma sig frá skotmanninum og opnaði skotlínu fyrir Lavazzi sem smellhitti boltann og Cech kom engum vörnum við.

Skömmu eftir jöfnunarmarkið fékk Ramires fínt færi en skot hans fór langt yfir mark heimamanna. Og rétt þar á eftir síðar braut Meierles klaufalega á leikmanni Napoli og kækti sér í gult spjald og leikbann í seinni leiknum að auki.

Í uppbótartíma fyrrihálfleiks skoruðu heimamenn aftur og tóku forystuna. Eins og svo oft þennan veturinn var vörn liðsins steinsofandi á verðinum þegar Cavani skallaði eða tók með öxlinni fyrirgjöf sem sveif yfir tvo varnarmenn og markvörð Chelsea og setti boltann í netið eins og ekkert væri. Þetta mark var eins og köld vatnsgusa í andlit leikmanna Chelsea mikið áfall að fá á sig svona klaufalegt mark svo skömmu fyrir leikhlé og lenda undir.

Seinni hálfleikur bauð upp á heilmikla skemmtun og má segja að liðin hafi sótt á báða bóga og einnig buðu bæði lið upp á frekar skrautlega varnarleik svo ekki sé meira sagt. 

Þegar um tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik fékk Lavazzi dauðafæri en setti boltann rétt fram hjá marki Chelsea. Tíu mínútum síðar bætti hann upp fyrir mistökin þegar boltinn barst til hans eftir hrikaleg mistök Luiz í vörn Chelseaog skoraði í opið markið þar sem Cech var kominn í skógarferð og eftirleikurinn honum því auðveldur. Í stöðunni 3-1 voru þeir Lampard og Essien sendir inn til að reyna að efla liðið og koma inn dýrmætu marki sem myndi breyta seinni viðureigninni töluvert.

Besta færið féll þó í hlut heimamanna en A.Cole bjargaði glæsilega á línu og er óhætt að segja að með þessari frammistöðu hafi hann haldið liðinu inn í Meistaradeildinni. Leiknum lauk svo án þess að Chelsea næði að ógna að ráði.

Þessi úrslit hljóta að teljast veruleg vonbrigði fyrir Chelsea og klárt að róðurinn í seinni leiknum verður þungur gegn frísku liði Napoli. Möguleikarnir eru sannarlega fyrir hendi en þá verður AVB að finna einhverja lausn á þessum hryllilega varnarleik sem liðið spilar. 

Ekkert lið getur náð árangri ef ekki er spilaður skynsamlegur og vel skipulagður varnarleikur, slíku er bara alls ekki til að dreifa í leik Chelsea þessi misserin.

Ekki hefur pressan á AVB minnkað við þessi úrslit en ekki er öll von úti enn og nú er bara ekki annað í boði en að liðið standi saman og komi sér út úr þessari kreppu ekki seinna en strax. 

KTBFFH

BB

 

 

 

 



Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar