Upphitun: Chelsea – Manchester United

man utd chelsea.jpg

Chelsea tekur á móti Manchester United í deildinni í dag og það má reikna með því að þetta verði mjög fjörugur leikur. Manchester United er heilum 12 stigum á undan okkur í deildinni og því er nánast hægt að útiloka það að við vinnum deildina þetta árið. Chelsea er 2 stigum á undan Arsenal og 3 stigum á eftir Newcastle þannig það er alls ekki langt í liðin fyrir neðan okkur sem þýðir að við verðum að vinna þennan leik.

Leikmenn Chelsea eru búnir að vera mjög heppnir með meiðsli þetta tímabil en fyrir þennan leik eru óvenjulega margir meiddir. Þar á meðal má nefna Terry, Ramires, Mikel og Lampard en Lampard gæti þó verið tilbúinn fyrir þennan leik. Á sama tíma er Ashley Cole í banni sem hlýtur að þýða að Gary Cahill fái að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Í síðasta leik, sem var gegn Swansea, voru leikmenn Chelsea alls ekki að spila upp á sitt besta. Liðið þurfti að spila án Terry og Lamps og í hálfleik þurfti AVB svo sannarlega að breyta einhverju eftir að hans menn voru miklu minna með boltann og sköpuðu nánast engin færi. Hann breytti aðeins til og í síðari hálfleik var liðið meira með boltann en náði varla að skapa mikið. Eitt stig frá Wales er algjör heppni miðað við að Swansea skoraði sjálfsmark á síðustu mínútu leiksins.

chelsea-543.jpgManchester United datt út úr Meistaradeildinni í haust og FA-bikarnum um daginn, þannig liðið spilar bara í deildinni og Europa League eins og Manchester City. Á þessu ári hefur liðið farið á heimavöll City og unnið 3-2, Emirates og unnið 1-0, Anfield og tapað 2-1 og St. James‘ Park (ég ætla ekki að kalla þennan völl neitt annað!) en þar töpuðu þeir 3-0. Meiðslin hafa verið mikil í ár; Anderson, Cleverly, Fletcher, Jones, Lindegaard, Nani, Owen, Rooney, Vidic og Young hafa allir verið meiddir en margir eru nú að koma til baka. Það er þó enginn vafi um það að það væri þæginlegra fyrir okkar menn ef leikmenn á borð við Rooney, Nani og Young væru meiddir..

Vissir þú..

  • Að Man Utd hefur unnið 29 leiki á Stamford Bridge og tapað 22? 18 leikir hafa endað með jafntefli.
  • Að Chelsea hefur fengið á sig langflest spjöld af öllum liðum deildarinnar, 50 gul spjöld og 4 rauð?
  • Að Man Utd hefur bara fengið á sig sjö útivallamörk?
  • Að Man Utd er búið að ná í flest stig á útivelli þetta tímabil (26 stig í 11 leikjum)? Chelsea hefur náð færri stigum á HEIMAVELLI (22 stig í 11 leikjum)....
  • Að ef allir leikir væru 45 mínútur væru leikmenn Sir Alex Ferguson á toppi deildarinnar, 5 stigum á undan Manchester City?

Í síðustu átta deildarleikjum liðanna á Brúnni hefur Chelsea unnið sex og jafntefli hefur verið niðurstaðan tvisvar. Leikurinn byrjar klukkan 16.00 og verður sýndur í beinni á Ölver.

HOG


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar