Verður að sætta sig við stöðu sína

Anders Villas Boas, þjálfari Chelsea, sætti harðri gagnrýni eftir tap liðsins gegn Napólí í Meistaradeild Evrópu í gær. Stuðningsmenn félagsins hafa snúið baki við honum og skilja lítt í því hvers vegna uppáhald þeirra, Frank Lampard, er skilinn eftir á varamannabekknum.

Villas Boas varði liðsuppstillinguna eftir leikinn og sagði Lampard verða að sætta sig við stöðu sína. „Við ákváðum að stilla upp tveimur varnarsinnuðum miðjumönnum og Lampard var ekki annar þeirra. Þetta er ákvörðun sem ég tók og hann verður að sætta sig við. Hann bíður eftir sínu tækifæri og hann þarf að grípa það þegar þar að kemur. Hann hefur verið í þessari stöðu áður og áskorunin er hans,“ sagði Villas Boas. (mbl.is)

BB


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar