Willian vill ganga í raðir Chelsea

Willian, miðjumaður Shakhtar Donetsk, segist vilja ganga í raðir Chelsea áður en félagaskiptaglugginn lokar. Shakhtar hefur hafnað 16,5 milljóna punda tilboði frá Chelsea í Brasilíumanninn en talið er að úkraínska félagið vilji fá 20 milljónir punda fyrir hann.

,,Ég myndi ekki hræðast að koma til Englands því ég hef spilað gegn enskum liðum í Meistaradeildinni og skoðað enska boltann," sagði Willian.

,,Að spila í deild sem allir í heiminum horfa á yrði gott fyrir mig því ég vonast til að festa mig í sessi í brasilíska landsliðinu, sérstaklega þar sem HM fer fram þar eftir tvö ár. Það er markmið mitt. Ég hef lagt hart að mér í fjögur ár til að festa mig í sessi í landsliðinu."

,,Það koma tímar í lífi þínu þar sem þú áttar þig á því hversu heppinn þú hefur verið. Ég spilaði fyrir frábært félag hjá Corinthians og mér hefur gengið vel. Ég fór til Shakhtar og það átti eftir að verða frábær skipti."

,,Það var orðrómur um áhuga frá Barcelona og Arsenal áður en nú hefur Chelsea áhuga. Ef að næsta skref í ævintýrinu er England þá yrði ég spenntur fyrir því."

ÞS.


Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=120603#ixzz1kaal38Ee


Athugasemdir:

You must be logged in to leave a reply. Login »

Athugasemdir:





Samstarfsaðilar