Fös 05.feb 2010
Upphitun fyrir Arsenal
 

Á sunnudaginn verður sannkallaður stórleikur þegar okkar menn fá lið Arsenal í heimsókn á Brúnna í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Mikill topp- og nágrannaslagur framundan og kemur því ekkert annað en þrjú stig til greina !



 

                                                 

Sunnudaginn 7. febrúar 2010

Klukkan 16:00

 

Þrátt fyrir slæmt 1-1 jafntefli gegn liði Hull í vikunni eru okkar menn enn í toppsæti deildarinnar, nú með 55 stig eftir 24 leiki.  Manchester United koma svo rétt á eftir okkur með 53 stig en þeir sigruðu einmitt lið Arsenal seinustu helgi, 1-3, og sitja Arsenalmenn því eftir með 49 stig í þriðja sætinu.  Markatala okkar er sú besta í deildinni, 58:20 eða 38 mörk í plús á meðan markatala Arsenal er 60:28 eða 32 mörk í plús, en þess má geta að lið Arsenal hefur skorað flest mörk í deildinni á meðan við höfum fengið fæst á okkur. 

 

Dómari leiksins verður hinn 41 árs gamli Mike Dean.  Dean er einn af reynslumeiri dómurum deildarinnar en þar hefur hann dæmt í um það bil tíu ár og þar að auki hefur hann verið FIFA dómari í sjö ár.  Hann hefur dæmt ófáa stórleikina en hans taktík er að vera óspar með gulu spjöldin og taka stjórnina á leiknum strax í byrjun.  Með þessum hætti þarf hann sjaldan að lyfta upp rauða spjaldinu.

 Liðin tvö hafa mæst einu sinni það sem af er tímabilsins en sú viðureign var undir lok nóvembermánuðar á heimavelli Arsenal, Emirates leikvanginum.  Okkar menn hitta á góðan dag og unnu glæsilegan 3-0 sigur á slöppu liði Arsenal.  Mark hjá Didier Drogba og sjálfsmark hjá Thomas Vermaelen undir lok fyrri hálfleiks kom okkur í góða stöðu og gulltryggði Drogba síðan sigurinn með sínu öðru marki undir lok leiksins.  Carlo Ancelotti notaðist við 4-1-2-1-2 taktíkina í leiknum og má segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu, reyndar voru heimamenn án nokkurra lykilmanna sem tók mest allan eldmóð úr liðinu. 

Liðin tvö hafa samtals mæst 182 sinnum frá upphafi og kemur nú ekki á óvart að lið Arsenal hefur oftar haft betur í þeim viðureignum eða 69 sinnum gegn 52 sigurleikjum okkar manna.  51 sinni hafa liðin síðan skilið jöfn.  Þeir unnu einmitt seinustu viðureign liðanna á Brúnni, undir lok nóvembermánuðar árið 2008.  Þá sá Robin van Persie hreinlega um okkur en nú verður hann ekki með svo það er spurning hver í liði Arsenal getur stigið upp.  Það er allavega ljóst að það verður mikil stemning á Brúnni á sunnudaginn.  Viðureignir þessara liða hafa í gegnum árin verið ansi skrautlegar og virðist rígurinn á milli liðanna aukast í hvert sinn.  Nú er þetta orðinn einn mest spennandi leikur tímabilsins og er eftirvæntingin vægast sagt mikil.

Þrátt fyrir slæmt gengi undir lok ársins 2009 virðast Arsene Wenger og lærisveinar hans vera að rétta úr kútnum.  Liðið er á mikilvægum tímamótum þessa dagana, eftir tapið á Manchester United seinustu helgi, datt liðið aðeins úr toppbaráttunni og mun tap á sunnudaginn vera of mikið fyrir þá.  En með sigri opnast toppbaráttan upp á gátt og verða þeir þá til alls líklegir.  Liðið er þegar dottið út í FA bikarnum og Deildabikarnum og er deildin því þeirra eina lifibrauð þessa dagana, en Meistaradeildin bætist að sjálfsögðu við í lok mánaðarins. 

Eins og við höfum tekið svo vel eftir undanfarin ár spilar lið Arsenal mjög frjálslegan og skemmtilegan sóknarbolta undir stjórn Arsene Wenger.  Þetta kemur þó oft niður á liðinu sem er oft á tíðum kærulaust og hefur ansi marga veikleika.  Bakverðir liðsins eru ansi sókndjarfir og skilja því eftir sig mikið pláss.  Þetta föttuðu liðsmenn Stoke í viðureign liðanna í FA bikarnum sem og hæðaskort liðsins sem kemur þeim illa í föstum leikatriðum.  Í seinustu viðureign liðsins, gegn Manchester United, nýtti Sir Alex Ferguson sér einmitt kæruleysi Gaels Clichy, vinstri bakvörð Arsenal liðsins, sem varð þess valdandi að William Gallas, miðvörður liðsins, var úr stöðu allan leikinn.  Þannig að veikleikar liðsins eru margir en það eru styrkleikarnir líka.  Fyrst og fremst verðum við að hafa miklar gætur á fyrirliða liðsins, Cesc Fabregas, allan leikinn.  Orð fá ekki lýst hversu mikla snilli hann getur gert, en ef Jon Obi Mikel hittir aftur á annan eins toppleik og í seinustu viðureign liðanna, þurfum við ekki að hafa miklar áhyggjur af Fabregas. 

 John Terry verður mættur á sinn stað með fyrirliðabandið í hjarta varnarinnar á sunndaginn þrátt fyrir allt umstangið að undanförnu.  Ashley Cole er einnig búinn að hrista af sér meiðslin og verður mættur gegn sínum gömlu félögum, reyndar er mikil endurnýjun búin að vera í þessu Arsenal liði svo það eru afar fáir fyrrverandi liðsmenn hans þarna enn.  John Obi Mikel kemur aftur tilbaka eftir Afríkukeppnina og geri ég vonir um að hann verði með en frammistaða hans gegn Fabregas í fyrri viðureign liðanna var mögnuð.  Annars er spurning hvort Ancelotti breyti eitthvað til eftir Hull leikinn í vikunni, annaðhvort taktíkinni eða hreinlega prófar nýja menn.  Við vorum ansi fyrirsjáanlegir í flestum okkar aðgerðum og bara ekki nógu skeinuhættir, einfalt mál.

 

Líklegt byrjunarlið Chelsea

 

 Líklegt byrjunarlið Arsenal

 

Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Ölver og hefst upphitunin um klukkan 15:30 en leikurinn sjálfur hefst á slaginu fjögur.  Leikurinn verður einnig í beinni á Stöð 2 Sport 2 og hefst útsendingin þar klukkan 15:30.

Ég minni síðan alla tippara á að tippa á leikinn á spjallborðinu.

Come On You Blues !

KIJ

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA