Sun 07.feb 2010
Carvalho og félagar væntanlegir?
Riccy og félagar á leið á Laugardalsvöll?
Ísland í riðli með Portúgal í undankeppni EM

 

Rétt í þessu var dregið í riðla í undankeppni EM í knattspyrnu og má segja að Íslendingar hafi verið heppnir með andstæðinga, Portúgal, Danmörk, Noregur og Kýpur verða andstæðingar Íslands.

Þátttaka Porúgals í riðlinum þýðir að við getum átt von á nokkrum leikmönnum úr röðum Chelsea í heimsókn á Laugardalsvöllinn.

Þar ber helst að nefna varnartröllin Ricardo Carvalho og Jose Bosingwa, einnig Paulo Ferreira og Deco, þ.e. ef hann gefur áfram kost á sér í portúgalska landsliðið efir úrslitakeppni HM næsta sumar.

Svo er það bara spurning hvort og hverjir fyrrgreindra leikmanna verða í röðum Chelsea er Ísland tekur á móti Portúgal í Laugardalnum en leikdagur hefur enn ekki verið ákveðinn.

 KHH

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA