Mán 08.feb 2010
Drogba afgreiddi Arsenal
Drogba og Terry fagna fyrra marki Drogba í leiknum.
Tvö mörk frá Didier Drogba afgreiddu Arsenal á Stamford Bridge í gær.

 

Á fréttamannafundi s.l. föstudag var Carlo Ancelotti m.a. spurður að því hvernig best væri að spila gegn Arsenal? Svaraði hann því til að það væri vænlegast að liggja aftarlega og beita skyndisóknum.

Ancelotti var trúr orðum sínum og fengu leikmenn Arsenal að halda boltanum lengstum en þeir komust engu að síður nánast ekkert áfram í leiknum og fengu aðeins eitt færi alla leikinn en Cech gerði vel að verja frá Arshavin á 15. mínútu.

Chelsea liðið var aftur á móti í ham, gríðaleg góð einbeiting og vinnsla var í liðinu, allt frá Cech til Drogba, og fannst manni Chelsea ávallt líklegra til að bæta við mörkum í þau skipti sem hraðar sóknir þeirra sóttu að marki Arsenal.

Didier Drogba skoraði fyrsta mark leiksins strax á 7. mínútu og kom það eftir hornspyrnu frá Malouda sem hitti á kollinn á John Terry og hann stýrði boltanum á fjærstöng þar sem Drogba stóð óvaldaður og skoraði auðveldlega.

Á 23. mínútu kom svo mark númer tvo og kom það upp úr vel útfærðri skyndisókn þar sem boltinn barst út til hægri á Drogba, hann fór framhjá tveimur varnarmönnum og þrumaði boltanum framhjá stjörfum Almunia í marki Arsenal.

Drogba var ekki langt frá því að fullkomna þrennu sína í seinni hálfleik er aukaspyrna hans small í þverslá Arsenalmarksins. Lokatölur 2:0 fyrir Chelsea og allt sem bendir til þess að framundan sé einvígi Chelsea og Man United um titlinn, Arsenal hins vegar þurfa að fara að komast á sigurbraut aftur, annars eiga þeir á hættu að dragast niður í baráttuna um 4. sætið en Liverpool og Man City eru farin að narta í hælana á þeim.

Chelsea: Cech, Ivanovic, Carvalho, Terry, A. Cole - Mikel, Ballack (Zhirkov 81), Lampard - Malouda - Anelka (J.Cole 87), Drogba (Kalou 90).

Bekkurinn: Hilario, Ferreira, Alex, Deco.

OYS

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA