Mán 08.feb 2010
Ancelotti lofar hinn "fullkomna Terry"
Terry er maðurinn!
Ancelotti var ánægður með leikinn gegn Arsenal


 Ancelotti fannst Terry standa sig vel í leiknum,"John er fullkominn fyrirliði fyrir Chelsea. Hann er með frábært viðhorf. Hann spilar vel í öllum leikjum"

"Það er mjög nauðsynlegt fyrir lið að hafa svona leiðtoga. Hann stjórnaði leiknum. Hann er sterkur andlega. Hann er að vinna fyrir klúbbinn og við erum ánægðir með frammistöðu hans þessa dagana."

"Enska fyrirliðabandið var ekki mín ákvörðun og ætla ég ekki að dæma þá niðurstöðu. Ég veit að John hitti Capello en ég hitti John ekkert eftir það."

Ancelotti neitar að afskrifa Arsenal þótt þeir séu níu stigum á eftir Chelsea eftir tapið á Stamford Bridge.
"Arsenal hafa enn möguleika af því þeir eru með frábært lið.  Þetta fer allt eftir forminu hjá Manchester og Chelsea. Ég held að þetta verði ekki veðreiðar með tveim hrossum."

Hann var að vonum ánægður með Drogba, "Við skoruðum ótrúlegt seinna mark. Þetta var frábær hreyfing, frábær sending og frábært skot frá Didier. Þetta er fótbolti."

Arsenal voru meira með boltann, þeim bara tókst ekki að koma boltanum í netið, "Við vorum með góða varnarvinnu. Við reyndum að skora fleiri mörk og unnum saman í 90 mínútur. Stundum verður maður að verjast. Petr Cech stjórnaði þessu í 90 mínútur. Arsenal buðu upp á frábæran sóknarleik þannig að það var ekki létt. Þeir voru meira með boltann en það er ekki fótbolti. Fótbolti er sókn, vörn og úrslit."

Stjóri Arsenal Arsene Wenger tók undir þetta og segði eftir leikinn að Chelsea hafi spilað frábæra vörn og honum fannst Terry standa sig sérstaklega vel, "Ég trúi því að John Terry vilji vinna þegar hann spilar fótbolta og það fyrir fólkið, að spila fótbolta getur stundum verið andstæðan við það sem gerist í einkalífinu, á vellinum fær hann útrás."

-DJ
« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA