Mán 08.feb 2010
Fabio Borini
Fabio Borini
Númer: 45
Þjóðerni:
Ítalskur
Staða:
Sóknarmaður
Hæð: 180 sm.
Fæðingardagur:
23. mars 1991
Keyptur:
Kom frítt frá Bologna
Landsleikir: 22 fyrir unglingalandsliðin 17-21 árs 



 Á þessu tímabili höfum við séð nafnið Fabio Borini bregða fyrir nokkrum sinnum. Hver er þetta?

Borini byrjaði að spila 9 ára. Hann og faðir hans voru miklir Bologna aðdáendur og gekk Fabio gekk í þeirra raðir 2001. Það var svo Frank Arnesen sem lokkaði hann til Chelsea sumarið 2007.

Tímabilið 2008-2009 var hann fyrsti kostur sem sóknarmaður fyrir varaliðið og skoraði 4 mörk í 8 leikjum, hann skoraði svo 11mörk í 10 leikjum fyrir unglingaliðið.

Tímabilið 2009-2010 byrjaði hann í varaliðinu en Ancelotti sá eitthvað við hann og kom hann inn á 20.september í 3-0 sigri á Tottenham er hann skipti við Anelka á 89 mínútu. Hann spilaði svo allan leikinn gegn Q.P.R. í deildarbikarnum og kom svo inn á í 2-2 jafntefli gegn APOEL Nicosia í Meistaradeildinni.

Það hefur verið gaman að sjá til leikmannsins það sem komið er og vonandi verður meira í framtíðinni. Þeir segja að hann sé fæddur til að skora

Fabio Borini á YouTube

Ferill hjá Chelsea:                     Leikir               Sem  varamaður                          

2007-2010                                    7                            6      

-DJ         
 

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA