Mán 08.feb 2010
Cech: "Arsenal búnir að vera"
Þessi stóð sig vel á sunnudag!
Eftir leik liðanna á sunnudag, tvö frábær mörk frá Didier Drogba, frábæran varnarleik og frammistöðu Cech er Chelsea með 9 stiga forskot á erkifjendurna frá Islington.

 Þetta var tvö hundraðasti leikur Cech í búningi Chelsea og ekki leiðinlegt að halda upp á það með því að halda hreinu á móti Arsenal og um leið setja ákveðna pressu á MU, og hafði Cech þetta um málið að segja:

"Þetta gæti ekki verið betra, þetta var mikilvægur sigur. Mér fannst ég ná að skila mínu í þessum leik og í þokkabót var þetta í 100 skipti sem ég held hreinu í 200.  leik mínum fyrir félagið. Núna held ég að Arsenal eigi ekki séns, það er erfitt að vinna upp níu stig þegar leikjunum fer að fækka og ljóst er að þeir eiga erfiða leiki framundan."

Greinilegt er að þetta var gott mótsvar við frábærum leik Man Utd gegn Portsmouth.

"Það var mikilvægt að svara þessu strax, ef við hefðum gert jafntefli þá væru þeir á toppnum á markatölu.

Þess vegna er þessi leikur ennþá mikilvægari svona eftir á að hyggja því við létum pressuna ekkert á okkur fá,
í framhaldinu er það liðið sem heldur stöðuleikanum í lykilstöðu, það lið sem tapar færri stigum héðan af stendur uppi sem sigurvegari." Sagði Cech að lokum.

Ballack hafði ýmislegt svipað til málanna að leggja en um Arsenal sagði hann þetta:

"Ef lið spila svona á móti þeim er hægt að leggja þá sannfærandi. Fótbolti snýst um að vinna leiki og við gerðum þetta eins og Man Utd gerði þetta, leyfðum þeim að dúlla sér og sóttum síðan hratt og miskunnarlaust. Arsenal hafa sýnt, bæði á þessu tímabili og því síðasta að það er þeim um megn að hampa meistaratitlinum"

2horseRace?

PBP
« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA