Mán 08.feb 2010
Upphitun fyrir Everton
ÉG SPILA BARA SAMT!
Chelsea mætir Everton á Goodison Park næstkomandi miðvikudagskvöld og eigum við harma að hefna frá því að þeir gerðu hið miður eftirminnilega 3-3 jafntefli á Brúnni.


 Ekki er að búast við neinum breytingum á liðsuppstillingunni fyrir þennan leik en ennþá leikur vafi á hvort fyrirliði liðsins, John Terry, verði orðinn leikfær eftir að hann varð fyrir smávægilegum meiðslum í leiknum gegn Arsenal. Við vonum auðvitað það besta, en í versta falli eigum við hinn magnaða Alex til þess að leysa Terry af hólmi.

Everton eru þessa stundina í 9. sæti eftir 24 leiki með 34 stig og hefur gengið vel upp á síðkastið, sérstaklega þar sem þeir eru að endurheimta menn úr meiðslum. Þeir hafa hirt af okkur stig undanfarið og satt best að segja að miðað við "rönnið" sem þeir eru á þurfum við að eiga toppleik. Chelsea hefur líkt og Man Utd halað inn 16 stig í síðustu 6 leikjum en aðeins ósigurinn á móti Liverpool gerir það að verkum að Everton er ekki einnig á toppnum á þeim lista. Þeir eru sem sagt með 13 stig úr síðustu 6 leikjum og það verður svo sannarlega ekkert gefið eftir á Goodison.

Louis Saha hefur verið atkvæðamestur í markaskorun hjá þeim með 11 mörk en leikmenn eins og Cahill og Yakubu hafa sýnt það að það verður alltaf að hafa miklar gætur á þeim. Rússinn þeirra, Bilyaletdinov, hefur líka komið sterkur inn hjá þeim og einnig eru gleðifréttir fyrir þá að Arteta virðist vera á leiðinni úr sínum erfiðu meiðslum þannig hann gæti spilað á miðvikudag.

Aftur að Chelsea, eigum við ekki að vona að það verði stillt upp í 4-3-3 líkt og á móti Arsenal með Malouda og Anelka sitt hvoru megin við Drogba, það var alveg þrennt ólíkt að horfa á spil okkar manna á móti Hull þar sem stillt var upp 4-4-2.

Leikurinn verður sýndur í beinni í Ölveri kl 20.00 á miðvikudagskvöld.

Fjölmennum þangað KTBFFH!

PBP

Þessi má ekki fagna svona aftur

MÆTUM!
« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA