 |
 |
| Svo er bara að skora á Brúnni |
Ensku blöðin eru harðorð í garð dómarans.
Salomon Kalou telur að þetta hafi verið víti er brotið var á honum innan vítateigs Inter á síðustu andartökum fyrri hálfleiks, annars hefði hann átt að fá spjald.
"Þetta var víti en dómarinn ákvað að svo væri ekki þannig það er ekkert hægt að gera í því."
"Mér fannst Samuel koma við hægri fótinn á mér en dómarinn sagði að ég hafi verið búinn að missa valdið á boltanum þegar hann snerti mig. En ég var að undirbúa mig fyrir skot og ef hann snertir mig aftan á fótinn þá er það víti, ef ekki þá á hann að spjalda mig fyrir leikaraskap."
Kalou kvittaði fyrir sig og setti mikilvægt mark í síðari hálfleik. Þetta mark getur hjálpað Chelsea að komast áfram enda sterkir á heimavelli.
"Það er góð tilfinning að hafa skorað mark á útivelli, nú þurfum við að skora á Brúnni og ekki fá á okkur mark"
"Jose vissi að við værum að fara sækja og halda boltanum. en þeir skoruðu á réttu tímunum, það skipti sköpum. Við vissum að við gætum stjórnað leiknum en við vissum einnig að þeir væru erfiðir á köflum og það var einmitt það sem gerðist."
-DJ
|