Fim 25.feb 2010
Upphitun fyrir Manchester City
 

Á laugardaginn verður heldur betur skemmtilegur leikur þegar okkar menn fá þá ljósbláu í Manchester City í heimsókn á Brúnna. Tvö ríkustu félög Bretlands mætast hér í miklum toppslag en gestirnir hafa verið að spila góðan fótbolta að undanförnu og er því erfiður leikur fyrir höndum !



                                                                  

Laugardaginn 27. febrúar 2010

Klukkan 12:45

 

Okkar menn eru enn á toppi deildarinnar, nú með 61 stig eftir 27 leiki, einu stigi á undan Manchester United og auk þess með einn leik til góða á þá.  Þannig að sigur á laugardaginn kæmi okkur í ansi góða stöðu.  Lið Manchester City er sem stendur í fimmta sæti deildarinnar með 46 stig eftir 26 leiki, eiga þarna leik til góða og geta því með sigri komist upp fyrir Tottenham í fjórða sætið.  Allavega er deginum ljósara að það verður hörkubarátta um Meistaradeildarsæti því síðan koma lið Aston Villa og Liverpool rétt fyrir aftan þá ljósbláu.

Liðin hafa mæst einu sinni það sem af er tímabilsins en sú viðureign var þann 5. desember síðastliðinn á heimavelli Manchester City, City of Manchester Stadium.  Og það byrjaði vel fyrir okkar menn því strax á áttundu mínútu komust við yfir eftir sjálfsmark hjá Emmanuel Adebayor, framherja City.  En Adebayor bætti upp fyrir mistök sín og jafnaði metin á 37. mínútu fyrir heimamenn.  Það var síðan hinn eini sanni Carlos Tevez sem skoraði sigurmark leiksins á 56. mínútu og lokastaðan heldur óvænt, 2-1 fyrir City.  Þannig að nú eigum við harma að hefna því ekki ætlum við að tapa tvisvar gegn þeim á sama tímabilinu !

   [chelsea-v-mancity-4.jpg]

Liðin hafa samtals mæst 136 sinnum frá upphafi og hafa okkar menn oftar haft betur í þeim viðureignum eða 57 sinnum gegn 43 sigurleikjum City manna.  36 sinnum hafa liðin síðan skilið jöfn.  Að undanskildum seinasta leik höfum við haft gott tak á þeim seinustu fjögur tímabil og er þar 6-0 sigurinn hátt á blaði.  Við verðum nefnilega að fara alla leið til ársins 1993 til að finna seinasta sigurleik þeirra á okkur á Brúnni.  Þá höfðu þeir betur 2-4 en til gamans má geta að þeir Graham Stuart og John Spencer voru markaskorar okkar í leiknum en auk þess gerði Frank Sinclair ansi slysalegt sjálfsmark.  En það má allavega með sanni segja að tölfræðin er með okkar mönnum.  Liðin voru reyndar saman í efstu deild í um þrjá áratugi á miðri seinustu öld og voru þá ansi svipuð en seinustu 20 til 30 ár höfum við verið ívið sterkari. 

 

Þjálfari Manchester City er Ítalinn Roberto Mancini.  Hann tók við liðinu undir lok seinasta árs og var því ekki við stjórn í seinustu viðureign liðanna.  Hann var þó á meðal áhorfenda og sá því hvernig fyrrverandi þjálfari liðsins, Mark Hughes, gerði okkar mönnum erfitt fyrir.  Mancini er enginn nýgræðingur í bransanum, hann hefur áður þjálfað lið Fiorentina, Lazio og Inter Milan en með Inter vann hann ítölsku deildina þrjú ár í röð áður en hann lenti upp á kant við eigenda félagsins og var að lokum rekinn.  Talið er að ákveðið hafi verið seinasta sumar að Mancini myndi taka við liði Manchester City og hefur hann því haft nógan tíma til undirbúnings og hefur árangurinn ekki látið á sér standa fyrir utan fáeina tapleiki gegn Everton og Hull City.

 

Lið Manchester City er með hörku leikmannahóp og marga magnaða leikmenn.  Það er valinn maður í hverri stöðu en til að byrja maður væri gaman að kíkja á fyrrverandi Chelsea menn.  Þar fer fremstur flokki vinstri bakvörðurinn Wayne Bridge en hann hittir einmitt sinn besta vin á laugardaginn, John Terry.  Shaun Wright-Phillips er heldur ekki svo spenntur að mæta á Brúnna en minningarnar þaðan hafa flestar verið af varamannabekknum.  Mancini hefur bæði notast við 4-3-3 og 4-4-2 taktíkina og kæmi mér það ekki á óvart ef hann skyldi notast við þá fyrrnefndu á laugardaginn.  Hann vill jú eiga séns í þriggja manna miðju okkar.  Aðalmaðurinn í liði City þessa dagana er framherjinn Carlos Tevez, hann er markahæsti leikmaður liðsins og búinn að vera í frábæru formi, 13 mörk í deildinni og 19 allt í allt.  Hann mun njóta stuðnings hins stórefnilega Adam Johnson, en Johnson var keyptur í janúarglugganum og komið sterkur inn í byrjunarliðið en tæknin hans og hraði getur farið illa með bakverði okkar.  Að lokum er vert að nefna miðjumanninn Gareth Barry en hann, ásamt markverðinum Shay Given, eru einu leikmenn liðsins sem hafa spilað alla 26 deildarleikina.  Barry verður í stóru hlutverki á laugardaginn inn á miðri miðjunni og mun hafa í nóg að snúast.

       

Það eru mikið af spurningamerkum fyrir leik okkar á laugardaginn.  Þó er nokkuð ljóst að markvörðurinn Petr Cech verður fjarri góðu gamni og kemur Hilario því væntanlega í markið í hans stað, vonandi aðeins heitari en seinast.  Einnig verður spennandi að sjá hvort Ancelotti gefi Malouda annan séns í vinstri bakverðinum eða taki öruggu leiðina og velji Paulo Ferreira.  Menn eins og Nicolas Anelka og Didier Drogba fundu ekki alveg taktinn í leiknum gegn Inter, reyndar var Drogba í strangri gæslu Lucio mest allan tímann en lítið kom frá Anelka.  Ivanovic kemur alltaf meira og meira á óvart og er Mikel enn í góðu gamni aftast á miðjunni svo menn eins og Jose Bosingwa og Michael Essien eru ekki eins sárt saknað og haldið var.  

   

Líklegt byrjunarlið Chelsea

Líklegt byrjunarlið Manchester City

Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Ölver og hefst upphitunin um klukkan 12:25 en leikurinn sjálfur hefst á slaginu 12:45.  Leikurinn verður einnig í beinni á Stöð 2 Sport 2 og hefst útsendingin þar klukkan 12:35.

Ég minni síðan á tippleikinn á spjallborðinu.

Come On You Blues !!

KIJ 

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA