 |
 |
| Ekki gott |
Petr Cech, markvörður Chelsea, verður fá í allt að því mánuð vegna kálfameiðsla en þetta staðfesti félagið í gær.
Þessi 27 ára gamli Tékki meiddist í 2-1 tapi þeirra bláu gegn Inter Milan á Ítalíu á miðvikudaginn var.
Eftir skoðun komst í ljós að Cech reif vöðva í kálfa og talsmaður Chelsea sagði að Cech yrði frá næstu 3-4 vikurnar.
Þá má búast við því að hinn portúgalski Henrique Hilario fari í markið á meðan að Cech er meiddur.
Cech mun missa af deildarleikjum gegn Manchester City og West Ham, bikarleik gegn Stoke og Meistaradeildarleik gegn Inter. Þá er ekki víst hvort að hann nái leikjum gegn Blackburn og Portsmouth í deildinni.
|