Mið 03.mar 2010
Landsliðin - Leikmenn og leikir
Stutt ferðalag til tilbreytingar
Í landsleikjahléinu verða margir Chelsea menn í baráttunni með landsliðum sínum. Kíkjum aðeins á hverjir verða hvar.

 

Didier Drogba og Salomon Kalou verða í eldlínunni með Fílabeinsströndinni í vináttuleik gegn S-Kóreu sem verður háður á Loftus Road, heimavelli QPR. Ekki langt ferðalag fyrir fílabeinsstrendingana.

Michael Ballack tekur ásamt löndum sínum á móti Argentínumönnum í vináttuleik en þessar þjóðir mættust einmitt í úrslitum HM 1986 og 1990.


Englendingar
etja kappi við Egypta en Fabio Capello, landsliðsþjálfari enskra, valdi
Frank Lampard og John Terry í hópinn.


Frakkar takast á við Evrópumeistara Spánverja og þar á meðal verða Nicolas Anelka og Florent Malouda á meðan Portúgalir spila heima við Kínverja en í þeim leik verða Ricardo Carvalho og Paulo Ferreira líklega í byrjunarliðinu og Henrique Hilario vermir væntanlega bekkinn.


Hinn brjálæðislega skemmtilega brosmildi Branislav Ivanovic heldur ásamt Serbum til Alsír á meðan hinn knái Miroslav Stoch vonast sennilega eftir að koma inn á í heimaleik Slóvaka gegn Norðmönnum.


Einnig eru margir leikir á dagskrá hjá U-21árs liðunum.


Leikirnir eru mismikilvægir en stærsti leikur þessarar helgar verður væntanlega uppgjör Englendinga og Grikkja í undankeppni Evrópumótsins, en þeir síðarnefndu leiða riðilinn með tveimur stigum en hafa leikið leik meira. Í liði Englands verða fulltrúar Chelsea þeir Daniel Sturridge, Michael Mancienne, Jack Cork og Ryan Bertrand 


Jeffrey Bruma spilar með Hollendingum heima gegn Pólverjum en Hollendingar hafa verið á miklu skriði í keppninni. Ítalía á ærið verkefni fyrir höndum og má ekki slaka á gegn Ungverjum á heimavelli og Fabio Borini framherjinn ungi vonast til þess að setja mark sitt á þann leik.

Írar eru í vandræðum í sínum riðli en eru hægt og rólega að skapa nýtt lið og Conor Clifford sem þekktur er fyrir sín þrumuskot fær væntanlega tækifæri gegn Armenum í Dublin.

Nemanja Matic spilar lykilhlutverk á miðjunni hjá Serbum sem spila í Makedóníu gegn heimamönnum og í kvöld fer fram leikur milli Tyrklands og Slóvakíu en hinn þýsk-tyrkneski Gökhan Töre hefur staðið undir nafni sem galdramaður á vinstri vængnum hjá Tyrkjum.

Af U-19ára liðunum er minna að frétta.

Gael Kakuta spilar sennilega tvo leiki með Frökkum á þriðjudag og fimmtudag, báða gegn Úkraínu. Hollendingar taka á móti Englendingum á fimmtudag og er eini fulltrúi Chelsea þar miðjumaðurinn ungi Jacob Mellis.


PBP

 

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA