Fös 23.júl 2010
Matic til Bologna á láni?
Fćr hann sénsinn hjá Chelsea?
Ítalska liðið Bologna hefur verið að falast eftir að fá miðjumanninn unga en sterka, Nemanja Matic, á lánssamning út leiktíðina.

 

Matic hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Chelsea enn sem komið er en honum er væntanlega ætlað stærra hlutverk í ár en á síðasta keppnistímabili.

Bologna menn vilja æstir styrkja miðjuna hjá sér en þeir enduðu rétt fyrir ofan fallsæti í Serie A á síðasta tímabili. Ef Chelsea og Matic samþykkja þennan lánssamning er greinilegt að skörðin eftir þá sem yfirgefið hafa herbúðir okkar verða fyllt með öðrum ráðum.

Mikið er rætt um möguleg kaup Chelsea á miðjumanninum brasilíska Ramires frá portúgölsku meisturunum Benfica þessa dagana og samkvæmt sögusögnum er bara dagaspursmál hvenær hann verður kynntur til sögunnar hjá Chelsea.

Við fylgjumst með og látum ykkur vita um leið og línur skýrast.

 

 

 

 

PBP

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA