Fös 23.júl 2010
Draumakaup Chelsea fyrir tímabilið 2010 - 2011
 Jóhann Már Helgason spáir í hlutina

Hverjir ættu að koma, hverjir mega fara!


Fyrir réttu ári síðan ritaði ég hér stuttan pistil sem fjallaði um leikmannakaup Chelsea fyrir komandi tímabil. Helstu niðurstöður mínar í þeirri grein voru að Chelsea væri með nokkuð gamlan leikmannahóp (miðað við mörg önnur topplið Evrópu) sem þyrfti á örlítilli upplyftingu að halda. Þá kallaði ég eftir tveimur mönnum, Franck Ribery og Wesley Sneijder. Ribery var sagður falur fyrir „rétta“ verðið og Sneijder var á brunaútsölu Real Madrid, falur fyrir 15 milljónir punda. Það þekkja allir hvernig þetta fór, okkar ástkæri Jose Mourinho lét ekki bjóða sér Sneijder tvisvar og keypti hann til Inter þar sem hann hreinlega blómstraði og sannaði sig sem einn allra besti miðjumaður heims, hann hélt svo uppteknum hætti á HM þar sem hann leiddi Hollendinga alla leið í úrslitaleikinn. Hann mun sennilega vera ofarlega á listanum þegar France Football tímaritið tilkynnir um Ballon d‘Or verðlaunin.

 

Ribery stóð sig ágætlega með Bayern sem komust í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en sennilega var rétt ákvörðun að borga ekk einhverjar 40 milljónir punda fyrir þann kauða sem virðist sjaldan brosa á vellinum og eyðir frístundum sínum í Frakklandi á vafasömum stöðum í ennþá vafasamari félagskap.

Þrátt fyrir að Chelsea hafi ekki styrkt liðið sitt mikið í fyrrasumar (Zhirkov, Sturridge, Turnbull) að þá var síðasta tímabil sennilega það farsælasta í sögu félagsins, við unnum jú tvennuna á eftirminnilegan hátt! Ancelotti sýndi enn á ný að hann er meðal fremstu þjálfara heimsins og felast syrkleikar hans m.a. í því ná öllu því besta úr leikmönnum sem fyrir fram voru ekki taldir lykilleikmenn sbr. Malouda, Ivanovic og jafnvel Kalou , m.ö.o. Chelsea nýtti sinn hóp virkilega vel á síðasta tímabili.

En núna hafa átt sér stað töluverðar breytingar á okkar leikmannahóp, leikmenn á borð við Ballack, Joe Cole, Belletti og Deco (þó það sé ekki 100% staðfest þegar þetta er ritað) eru allir horfnir á braut og munar um minna. Ef ég hefði verið í stöðu Abramovic og Ancelotti að þá hefði ég samið aftur við Cole og Ballack en við verðum að treysta okkar mönnum að þeir viti hvað þeir séu að gera og séu þá með önnur plön í pokahorninu, en ljóst er að við þurfum að styrkja okkur ef við ætlum að halda titlunum okkar og gera atlögu að Meistaradeildinni.

Þá er spurt, hverjir koma í staðinn?

Það má ekki gleyma að Chelsea er búið að kaupa einn leikmann nú þegar, Yossi Benayoun, frá vinum okkar í Bítlaborginni. Þau kaup koma mönnum frekar undarlega fyrir sjónir en hann Yossi hefur nú sýnt að hann er ekki slakur leikmaður þó maður sjái hann ekki beint fyrir sér sem byrjunarliðsleikmann.

En það er heill hafsjór af leikmönnum sem hafa verið orðaðir við Chelsea í allt sumar. Leikmenn á borð við Aguero, Pato, Hamsik, Ozil, Torres, Kheidira, Balotelli og núna síðast Brasilíumennirnir Neymar, Ramires og jafnvel Kaka hafa allir á einhverjum tímapunkti verið orðaðir við okkur.

 Hér er vert að staldra aðeins við og skoða nákvæmlega hvað við þurfum í okkar lið. Að mati höfundar þá þurfum einn hörku miðjumann sem getur bæði varist og sótt til að auka breiddina á miðjunni, svo þurfum við að minu mati ennþá svona playmaker týpu sem er svipuð hugsun og var í Sneidjer kaupunum í fyrra. Hlutverk þessa leikmanns getur orðið þýðingarmikið þar sem hann myndi koma með nýja vídd í sóknarleik Chelsea sem reyndar var alveg rosalega góður í fyrra, 103 mörk í 38 leikjum í deildinni. Svo þurfum við að mínu mati einn ungan framherja sem fær það vandasama hlutverk að taka við keflinu af sjálfum Drogba eftir nokkur ár.

Af þessum leikmönnum sem orðaðir hafa verið við okkur að þá tel ég líklegast að Ramires komi og tel ég það vera góð kaup. Hann er ungur (fæddur 1987) og kemur með gott orðspor bæði frá Brasilíu og Portugal og hann er einmitt þessi leikmaður sem er frekar varnarsinnaður bardagamaður en hefur hæfileikann til að lauma inn einu og einu marki. Kæmi að mínu mati í staðinn fyrir Ballack.

Svo myndi ég viljá sjá Roman taka sig til og kaupa Mesut Ozil, þessi strákur sýndi það á HM að hann er þrælgóður og er akkurat þessi öðruvísi tegund af leikmanni sem ég tel okkur þurfa, með mjög góða tækni, býr yfir hraða og er með auga fyrir stuttu samspili. Það besta við hann er að hann á bara eitt ár eftir af samningi sínum við Werder Bremen og er því falur fyrir um 14 – 17 milljónir punda. Ég tel að það sé mjög gott verð fyrir hann og ef við kaupum hann ekki þá mun hann enda í Madrid eða það sem verra er í Manchester borg – þá held ég að við myndum naga okkur í handabökin þegar fram liðu stundir.

Hvað framherja varðar að þá myndi maður að sjálfsögðu ekki slá höndinni á móti Torres, en ég tel bæði að hann sé of dýr og muni ekki vilja koma til okkar. Það að Joe Cole hafi farið til Liverpool hefur líka hjálpað til við að halda honum ánægðum á Anfield. En sá sem er líklegastur þegar þetta er skrifað er hinn ungi Neymar (f. 1992!!). Þessi strákur er sagður vera efnilegasti leikmaður Brasilíu síðan Ronaldo (hinn gamli) kom fram á sjónvarsviðið. Hann er alveg öskrandi fljótur með gríðarlega mikla tækni og virðist vera mikill markaskorari þar sem hann hefur skorað 41 mark í 77 leikjum með Santos. Hvað kaupverðið á honum varðar að þá vilja Santos menn fá heilar 30 milljónir punda fyrir hann sem mér finnst fráleitt, tel að það ætti að vera hægt að fá hann rétt yfir 20 milljónunum þar sem hann hefur gefið út að hann vilji fara til Chelsea.

 

 

 

 

 Ef við myndum tryggja okkur þessa þrjá menn, Ramires, Neymar og Mesut Ozil værum við ekki bara að stykja liðið okkar umtalsvert heldur líka að kaupa unga og hungraða leikmenn sem gætu verið lykilmenn hjá liðinu næstu 6-8 árin.

Áfram Chelsea,

Jóhann Már Helgason

 

 

 

 

 

 

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA