Fös 23.júl 2010
Tap í Amsterdam - Turnbull Harakiri
Adios amigo!
Chelsea lék við Ajax á heimavelli þeirra, Amsterdam Arena, í Amsterdam fyrr í dag. Leiknum lauk 3-1, heimamönnum í vil.

 

Ungt Chelsea lið atti kappi við lið Ajax í dag og þrátt fyrir kjánaleg og klúðursleg augnablik litu unglingarnir flestir hverjir nokkuð vel út og komust margir skammlaust frá sínu í dag.

Samskiptaörðuleikar milli Bruma og Turnbull ollu slysalegu sjálfsmarki áður en Sturridge náði að jafna metin með góðu vinstrifótarskoti utan teigs.

Adam var ekki lengi í paradís því eftir útspark frá markmanni Ajax átti Turnbull úthlaup aldarinnar, vissi ekki hvort hann var að koma eða fara, bakkaði aftur inn í teig og skutlaði sér á hættulitla sendinguna með tilþrifum.

Það vildi ekki betur en svo að hann rann næstum út úr teignum og missti klaufalega takið á boltanum sem gaf sóknarmanni Ajax dauðafæri á silfurfati sem hann og nýtti.

Turnbull var sem sagt að stimpla sig út. Chelsea fjárfestir í öðrum markverði, svo mikið er víst, nema að Delac verði heitur í vetur aðeins 18 ára gamall. Hann er nú að spila á Evrópumóti U-19 með Króatíu.

Leikurinn í heild var tíðindalítill en gaman var að innkomu Chalobah í hægri bakvörðinn en piltur er aðeins 15 ára og á greinilega framtíðina fyrir sér.

Einnig var lítið hægt að setja út á vörn liðsins nema kannski í þriðja markinu. Þá voru menn orðnir þreyttir en frammistaða varnarmannana ungu lofar góðu.

Svo er það Frankfurt í næstu viku, með sterkari leikmenn innanborðs.

Chelsea (4-tígull-2): Turnbull (Hilario h-l); B Clifford (Chalobah h-l), Bruma, Bertrand, Van Aanholt (Ince 64); Mikel (C Clifford 83); Essien (F) (Cork 73), Matic; McEachran (Sinclair h-l); Sturridge, Di Santo (Lalkovic 64)
Ónotaðir varamenn: Kaby

PBP

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA