Nokkuð mikið er fjallað um Chelsea í sunnudagsblöðum dagsins og er ætlunin hér að renna yfir það helsta. Við skoðum ekki aðeins þá leikmenn sem orðaðir eru við okkar ástkæra félag heldur einnig þá sem eru orðaðir við að yfirgefa félagið.
Orðrómur 1
Sú saga sem gengur nú fjöllum hærra og ekki "ómerkari" fjölmiðlar en ESPN virðast hafa svo öruggar heimildir fyrir að sönn sé, að þeir birta hana á heimasíðu sinni. Orðrómurinn er að brasilíski miðjumaðurinn Ramires sé á leið til Chelsea fyrir um 20 milljónir punda.
Hann heitir Ramires Santos do Nascimento að fullu nafni og fæddist þann 24. mars 1987 í Rio de Janeiro. Hann hóf ferilinn hjá Joinville í Brasilíu en komst fljótt til metorða og var seldur til Cruzeiro árið 2008 eftir að hafa verið á láni hjá "þeim bláu" síðan 2007. Þar lék hann aðeins eitt tímabil í viðbót áður en hann var seldur til Benfica árið 2009. Hjá Cruzeiro spilaði hann í fagurbláum búningi og fékk viðurnefnið "Blái Kenýabúinn" eða "The Blue Kenyan". Það átti sem sagt að lýsa fyrir hvaða lið hann spilaði (hörundslit) og því að hann væri sem þindarlaus og hætti aldrei að hlaupa.
Hann átti svo góðu gengi að fagna með Benfica á síðasta ári en þeir unnu tvöfalt, deild og bikar og var Ramires lykilmaður í þeirri velgengni. Þar spilaði hann mestmegnis hægra megin á miðjunni. (ekkert ósvipað eins og Essien, við hlið Lampards)
Hann átti svo nokkuð gott mót með Brasilíu á heimsmeistarakeppninni í S-Afríku í sumar. Þar var hann nokkurs konar prímusmótor þeirra inni á miðjunni og sýndi hann að það býr mikið í honum.
Orðrómur 3 + vafasamt rugl
Líklegt þykir eftir fréttir helgarinnar að miðvörðurinn sterki Ricardo Carvalho yfirgefi herbúðir Chelsea. Hann á að hafa gefið í skyn að það sé klásúla í samningi hans sem gerir það að verkum að ef hann vill fá sig lausan í sumar, þá verður klúbburinn að samþykkja það.
Við vitum ekkert hvort eitthvað sé til í því en vegna þessa vísast til "Carvalho til Real?".
Einnig er Cole til Real sögusagnirnar að verða meira og meira áberandi.
Carlo ætlar víst að bjóða David James samning:)
Í framhaldi af þessu eru svona "frábærir" orðrómar eins og "Carvalho og Cole til Madríd - Kaka og Higuaín til Chelsea"
Van der Vaart vill spila með Chelsea :)
Balotelli á víst að vera líklegur, Aguero er farinn útaf kortinu en fréttir í dag þess efnis að Torres sé óánægður í Liverpool ýtir undir það að hann sé á leið á Brúnna fyrir 60 milljónir punda.
Aðrir frábærir eru að Carlo vilji fá ítalskan miðvörð ... Nesta osfv ... osfv .... sillysillysilly.