Miðvörðurinn sterki hefur verið að tjá sig við fjölmiðla (AS spænskt dagblað) um að hann vilji enn og aftur spila undir stjórn Mourinho, í þetta sinnið hjá stórliði Real Madríd.
Mourinho keypti hann til Chelsea fyrir metfé (fyrir miðvörð) árið 2004 frá þáverandi Evrópumeisturum Porto. Hann hefur leikið meira og minna eins og engill síðan og oftar en ekki verið okkar besti varnarmaður. Hann hefur hinsvegar, með hækkandi aldri þurft að glíma við töluverð meiðsli sem hafa komið í veg fyrir að hann spili sinn besta leik.
 
Árin hjá Chelsea hafa greinilega tekið sinn toll
Það er víst á allra vitorði að Mourinho gerði tilraun í fyrra til þess að næla í þennan sterka leikmann, þá til Inter frá Mílanó en kannski sem betur fer fyrir okkur, tókst það ekki. Mourinho er tilbúinn til þess að gera aðra tilraun og vitað er af áhuga Rafel Benitez, þjálfara Inter.
Carvalho sagði í viðtali nýlega við AS á spáni að ef Real myndi bjóða í hann, færi hann þangað strax, hlaupandi eða syndandi. Hann sagði að liðið væri það besta í heimi og því væri stjórnað af langbesta knattspyrnustjóra á plánetunni sem hann hafði nú þegar átt tvö stórkostleg tímabil með, annað hjá Porto og hitt hjá Chelsea. Af hverju ekki það þriðja?
Svo er bara að bíða og sjá hvort sannleikskorn býr í þessu eða hvort þetta er eins og venjulega, "tekið úr samhengi".
PBP
|