 |
 |
| Hann kann sitt fag |
Samkvæmt spænskum fjölmiðlum hefur Chelsea falast eftir því að fá fyrrum tæknilegan ráðgjafa knattspyrnumála hjá
Barcelona,Txiki Begiristain, til liðs við klúbbinn.
Txiki er 45 ára gamall og lék áður með
Barcelona og var einnig landsliðsmaður Spánar. Hann kom aftur til
Barcelona sem tæknilegur ráðgjafi árið 2003 og átti stóran þátt í að snúa gæfu klúbbsins. Þá hafði
Barcelona ekki unnið titil í fjögur ár en síðan þá hefur klúbbnum gengið gríðarlega vel í öllum keppnum sem hann tekur þátt í.
Begiristain sá til að mynda alfarið um vistaskipti þeirra Ronaldinho og Eto’o til
Barcelona á sínum tíma.
Síðasta framlag hans til Barcelona var að krækja í sóknarmanninn snjalla frá Valencia, David Villa, en Begiristain yfirgaf Barcelona í kjölfar brotthvarfs Joan Laporta úr forsetastóli liðsins.
Spænskir fjölmiðlar fullyrða að Chelsea hafi boðið honum vænan samning og vilja
gera hann að yfirmanni knattspyrnumála hjá klúbbnum. Chelsea elta ennþá drauminn um að vinna meistaradeildina og kannski er Begiristain púslið sem vantar í myndina. Hann á að vera Ancelotti innan handar og verður væntanlega áhrifamikill þegar á þarf að halda. Hann og hans orðspor eitt getur styrkt klúbbinn svo um munar.
Samkvæmt þessum heimildum vilja forsvarsmenn
Chelsea fá svar frá Txiki fyrir Ágústlok.
PBP.
|