Mán 26.júl 2010
Allir komu þeir aftur !
 

Nú eru allar stjörnur Chelsea komar í hús og allir byrjaðir að æfa af fullum krafti. Sumarfríin búin og alvara lífsins tekin við.



                                                                                         Boswinga í miðið

Enska þríeykið Lampard, Terry og Ashley Cole voru allir í góðu líkamlegu ástandi, sem og portúgalarnir Richardo Carvalho, Ferreira og Deco. Carvalho var stíft bendlaður við Real Madríd um helgina þannig það er gott að vita af honum í Cobham.

                                                     Traustur vinur

Æfingaáætlun dagsins var ekki flókin; Menn voru skoðaðir hátt og lágt og fullvissa fengin um að allt væri í lagi. Svo tók við hin skemmtilegu "píptest" en þau klikka aldrei og menn alltaf jafn spenntir að etja kappi við hvern annan undir þessum kringumstæðum :)

                                                          Frábærir leikmenn

Í fyrsta skipti í langan tíma tók Jose nokkur Boswinga fullan þátt í æfingunni sem var jákvætt fyrir okkur.

Eftir nokkur "álagspróf" á leikmönnunum fékk Carlo Ancelotti þá alla með tölu til æfinga og þá var ekkert gefið eftir. Fyrsta æfingin snérist mest um að Terry og Carvalho sendu langa bolta þvert á völlinn og æfðar voru skyndisóknir.

                                                    Mr A dæmir hér "ljótt" á Benayoun.

Því næst tók við leikur milli tveggja liða á litlu svæði sem eykur boltatækni og móttöku.

Nú taka við stífar æfingar hjá leikmönnunum fram að leiknum á Sunnudag.

                                                Þetta sem Ancelotti dæmdi á !

PBP.

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA