 |
 |
| Lok lok og læs ! |
Breski veðbankinn Paddy Power tilkynnti í dag að ekki verður tekið við fleiri veðmálum um framtíð Fernando Torres.
Þessu lýsti bankinn yfir eftir að flóð veðmála varð hjá bankanum þess efnis að Torres færi til Chelsea fyrir komandi leiktímabil.
Það muna kannski sumir eftir að svipað atvik gerðist rétt áður en Joe Cole skrifaði undir hjá Liverpool. Þá varð álíka veðmálaflóð en spurður um það svaraði Hodgson; "Ég veðja ekki". Það vita allir hvernig sú saga endaði !
Við fylgjumst með heimasíðu Chelsea www.chelseafc.com í dag:)

PBP |