Þri 27.júl 2010
Ramires kaupin í uppnámi ?
 

Það er greinilega ýmislegt flókið við að kaupa eins og eitt stykki knattspyrnumann. Stundum verður það svo flókið að sennilegra er betra að hreinlega hætta við

                                                                                                                                       Kannski seinna ?

                                                               

 



Margir vefmiðlar hafa greint frá því að aðeins formsatriði og kynning sé eftir af kaupum Chelsea á miðvallarleikmanninum brasilíska Ramires. Nú hefur hins vegar enska deildarsambandið gert athugasemd hvað varðar eignarhald á leikmanninum. Benfica á aðeina 20% í leikmanninum og reglur deildarinnar eru að klúbbur í deildinni má aðeins kaupa leikmann af öðrum klúbbi.

Flestir muna eftir þegar Tevez og Mascerano komu til West Ham og málaferlunum í kjölfarið. Þá fóru nokkur lið í mál við West Ham og sættust WH og Sheffield United á greiðslu uppá 20 milljón pund. Sami fjárfestirinn á hlut að máli hér. Kia Joorabchian er sagður eiga 50% hlut í leikmanninum og ofurumboðsmaðurinn Pini Zahavi ku eiga 20% hlut.

Forsvarsmenn deildarinnar vilja gjarnan forðast viðlíka farsa og mál Tevez var og eru óhræddir við að beita þvingunum eða sektum ef klúbburinn brýtur reglurnar. Þeir geta einnig neitað kaupum að ganga í gegn. Þess má geta að West Ham var sektað af deildinni um 5,5 milljón pund fyrir að brjóta reglurnar þegar það keypti Tevez og Mascerano.

Þá er bara að vekja lögfræðiteymið á Brúnni og fóðra þetta mál hið snarasta.

PBP

 

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA