 |
 |
| Eftirsóttur er hann |
Talið er líklegt að varnarmaðurinn ungi eyði enn öðru leiktímabilinu fjarri heimahögunum.
Vitað er af áhuga Wolves á Mancienne enda hefur hann staðið sig gríðarvel þar síðastliðin tvö tímabil. Heyrst hefur að bæði forsvarsmenn Malaga á Spáni og Sporting Lissabon á Portúgal hafa sett sig í samband við Chelsea og falast eftir Michael á láni út leiktíðina.
Svo gæti farið að hann spilaði næstu níu mánuðina aðeins fjær heimkynnum sínum en hann bjóst við.
Við þetta má bæta að líklegt þykir að Jack Cork fari til Swansea á láni en þar er við stjórnvölinn Brendan nokkur Rodgers sem var knattspyrnustóri varaliðs Chelsea og hefur áður þjálfað Cork, svo sem hjá Watford líka.

PBP |