Fim 29.júl 2010
Chelsea neitar sögusögnum um Mancienne
Taktu sénsinn og nýttu hann
Sá orðrómur komst á kreik síðustu daga að Michael Mancienne hafi farið fram á það við Chelsea að vera settur á sölulista.

 

Chelsea hefur neitað þeim sögusögnum og um leið sagt að staða leikmannsins innan hóps hafi styrkst með tilkomu nýrra reglna innan deildarinnar.

Hvert lið verður að staðfesta hóp 25 leikmanna og verða 8 þeirra að vera "uppaldir" innan félags. Þeir þurfa ekki endilega að vera enskir, en greinilegt er á kaupstefnu klúbbsins að menn eins og Mancienne gætu spilað "hlutverk" á komandi tímabili.

Hann hefur leyst margar stöður hjá Wolves síðustu tvö tímabil svo sem miðvörð, bakvörð og nú síðast sem varnarsinnaður miðjumaður. Það er ljóst að ef hægt er að halda kauða sáttum, þá gæti hann reynst okkur drjúgur í ár.

PBP.

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA