Fös 30.júl 2010
Domenico Dolce og Stefano Gabbana til Chelsea :)
Flottir - Eru víst líka perluvinir
Frétt þess efnis að Domenico Dolce og Stefano Gabbana hafi samið við Chelsea fer nú sem eldur um sinu um gervalla netheima og ráða aðdáendur Chelsea sér vart fyrir kæti.

 

Svona að öllu gamni slepptu þá verða stjörnurnar frá Chelsea flottir næstu þrjú árin. Sömu tískugúrúar og sjá um Beckham, Jagger og George Clooney koma til með að "dressa" liðsmenn og þjálfaralið Chelsea.

Jakkafötin verða af sjálfsögðu dökkblá, dökkblá skyrta og dökkblátt bindi. (þvílíkt hugmyndaflug) Ancelotti verður eins nema hvað skyrtan hans verður ljósari en leikmannanna.

Í samningnum felst reyndar einnig að þeir félagar sjá um klæðnað allra starfsmanna klúbbsins, karla og kvenna. Allir kvenkyns starfsmenn Chelsea þurfa til dæmis að ganga í háum hælum án undantekninga. Leikmenn fá svo einnig "casual kit" eða léttari klæðnað sem eru léttari jakki og gallabuxur.

Í ofanálag eru bakpokarnir hér með bannaðir og allir leikmenn fá sérstaka, fallega bláa tösku á hjólum (flugfreyjutaska.)

 

PBP

« Fyrri frétt     Næsta frétt » 
© 2005 Íslenski Chelsea klúbburinn   Vefhönnun Design EuropA