Nýskráning: 

1. Umsækjandi greiðir árgjald sitt inn á reikning Chelsea klúbbsins, 0701-26-3840, kt. 690802-3840. Gæta þarf þess vel að kennitala og nafn umsækjanda komi fram við greiðslu árgjalds.

(Nánari upplýsingar um árgjald og árgjaldsflokka má finna á forsíðu Chelsea.is undir KLÚBBURINN og smella þar á Árgjald). 

2. Er MP banki hefur staðfest við Chelsea klúbbinn að greiðsla árgjalds hafi farið fram hefur stjórnarmaður Chelsea klúbbsins samband við umsækjanda og sendir honum viðeigandi eyðublað með netpósti sem hann er beðinn um að fylla skilmerkilega út og senda að því búnu til Chelsea klúbbsins á netfang Chelsea.is@simnet.is.

3. Stjórn Chelsea klúbbsins yfirfer gögn umsækjanda og færir upplýsingar í félagaskrá. Þá útvegar stjórn klúbbsins búsetuvottorð fyrir fullorðna auk aldursvottorðs en er börn og unglingar eiga hlut að máli þurfa viðkomandi að senda ljósrit af fæðingarvottorði eða vegabréfi til Chelsea klúbbsins á Íslandi, annað hvort með tölvupósti eða útprentun til heimilisfangs klúbbsins, PO BOX 8090, 128 Reykjavík.  

4. Að þessu loknu gerir stjórn Chelsea klúbbsins viðeigandi ráðstafanir varðandi skil á árgjaldinu til Chelsea Football Club í London, nánar tiltekið til Supporters Clubs - Membership Department. 

5. Stjórn klúbbsins sendir að lokum öll tilskilin gögn til Chelsea Football Club og eru gögnin ávallt send í ábyrgðarpósti. 

6. Hjá Chelsea Football Club tekur við allt að 4 vikna ferli við úrvinnslu gagna en að því loknu er félagsskírteinið sent beint til umsækjanda. Æskilegt er að umsækjandi láti stjórn Chelsea klúbbsins vita er félagsskírteinið berst honum og gefi þá jafnframt upp númer þess. 


Endurnýjun: 

1. Chelsea Football Club sendir félagsmönnum gögn vegna endurnýjunar aðildar í júnímánuði ár hvert, eru félagsmenn beðnir um að halda þeim gögnum til haga uns fyrirmæli berast frá stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi um fyrirkomulag á endurnýjun það árið en það getur verið breytilegt frá ári til árs. 

2. Er ákvörðun árgjalds liggur fyrir fá félagsmenn send viðeigandi gögn frá Chelsea klúbbnum með netpósti en þar koma fram allar nauðsynlegar upplýsingar vegna endurnýjunar, svo sem upphæð árgjalds, reikningsnúmer Chelsea klúbbsins, kennitala og heimilisfang auk annarra upplýsinga sem kunna að skipta máli.

3. Félagsmaður greiðir árgjaldið inn á reikning klúbbsins og sendir umbeðin gögn til Chelsea klúbbsins á netfang Chelsea.is@simnet.is

(Nánari upplýsingar um árgjald og árgjaldsflokka má finna á forsíðu Chelsea.is undir KLÚBBURINN og smella þar á Árgjald).

4. Stjórn Chelsea klúbbsins yfirfer gögn félagsmanns og staðfestir við félagaskrá. Hafi félagsmaður flutt á árinu útvegar stjórn Chelsea klúbbsins nýtt búsetuvottorð vegna þessa. 

5. Að þessu loknu gerir stjórn Chelsea klúbbsins viðeigandi ráðstafanir vegna skila á árgjaldi til Chelsea Football Club í London, nánar tiltekið til Supporters Clubs - Membership Department. 

6. Stjórn klúbbsins sendir að lokum öll tilskilin gögn til Chelsea Football Club og eru gögnin ávallt send í ábyrgðarpósti. 

7. Hjá Chelsea Football Club tekur við allt að 4 vikna ferli við úrvinnslu gagna en að því loknu er félagsskírteinið sent beint til umsækjanda. 


Athugið : 

Ef félagsmaður endurnýjar ekki aðild sína að Chelsea klúbbnum á ári hverju er hann talinn sem nýr umsækjandi næst er hann óskar eftir aðild.

Ferlið varðandi skráningu getur tekið allt að sex vikum frá því að gögn berast Chelsea klúbbnum þar til viðkomandi fær félagsskírteini sitt sent að utan hafi ekki orðið dráttur á greiðslu árgjaldsins.

ATHUGIÐ að endurnýjanir og nýskráningar sem berast eftir 31. desember hvert keppnistímabil eru ekki sendar Chelsea Football Club fyrr en eftir 1. júní og gildir þá fyrir næsta starfsár á eftir, þ.e. frá og með 1. júní yfirstandandi árs til og með 31. maí ársins eftir.

Í slíkum tilfellum er því um nokkurs konar forskráningu að ræða.