Athugið að hver sá sem greiðir árgjald til Chelsea klúbbsins fyrir 20. júlí 2012 fær sjálfkrafa 5 tryggðarpunkta (Loyalty Points) hjá Chelsea Football Club en það er sá punktafjöldi sem Chelsea mun krefjast að hver sá ráði yfir sem sækir um miða á leiki með Chelsea á Stamford Bridge gegn Arsenal, Liverpool, Manchester City, Manchester United, Queens Park Rangers og Tottenham Hotspur í Úrvaldsdeildinni keppnistímabilið 2012/2013 en færri punkta þarf til vegna leikja á Stamford Bridge gegn öðrum liðum Úrvalsdeildarinnar.
Chelsea Football Club áskilur sér þó rétt til að beita Tryggðarpunktareglunni í öðrum tilfellum ef svo ber undir, t.d. á síðasta heimaleik í Úrvalsdeildinni og heimaleikjum í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar, einnig á leikjum í undanúrslitum Meistaradeildar/Evrópudeildar.
Árgjöld 2012 / 2013:
Fyrirvari er á upphæðum árgjalda með tilliti til gengis íslensku krónunnar gagnvart breska pundinu, verði miklar breytingar þar á áskilur stjórn Chelsea klúbbsins sér rétt til að hækka/lækka árgjöldin eftir atvikum.
Fullorðnir:
1. TRUE BLUE ORIGINAL: Kr. 15.000.-
Forkaupsréttur að miðum, áskrift að Chelsea Magazine eða E-Magazine og gjafapakki, "Exclusive Members Pack", sé E-Magazine valið renna GBP 2.- af greiðslu viðkomandi til umhverfisverndarmála.
E-Magazine er í raun Chelsea Magazine nema að í þessu tilfelli er blaðið sent viðkomandi "On-line" þ.e.a.s. á e-formati á Netinu.
Exclusive Members Pack er gjafapakki sem inniheldur, m.a., geisladisk, kjaftfullan af spennandi efni úr herbúðum Chelsea Football Club.
Athugið að stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi tekur enga ábyrgð á að Chelsea Magazine skili sér til viðkomandi eins og til er ætlast, verði einhver misbrestur þar á verður viðkomandi félagsmaður að eiga um það sjálfur við útgefendur.
Þeir sem fylla þennan flokk eru sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti sem Chelsea Football Club stendur fyrir en dregið verður mánaðarlega í því um veglega vinninga.
2. TRUE BLUE MAGAZINE: Kr. 13.000.-
Forkaupsréttur að miðum, Chelsea Magazine eða E-Magazine.
Þeir sem fylla þennan flokk eru sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti sem Chelsea Football Club stendur fyrir en dregið verður mánaðarlega í því um veglega vinninga.
3. TRUE BLUE INTERNATIONAL: Kr. 7.000.-
Forkaupsréttur að miðum, afsláttarhefti, aðgangur að Chelsea TV Plus, CFC Online Video Center og "Streaming Chelsea TV Online".
Þeir sem fylla þennan flokk eru sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti sem Chelsea Football Club stendur fyrir en dregið verður mánaðarlega í því um veglega vinninga.
Athugið að stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi tekur enga ábyrgð á að aðgangur að Chelsea TV Plus, CFC Online Video Center og "Streaming Chelsea TV Online" skili sér til viðkomandi eins og til er ætlast, verði einhver misbrestur þar á verður viðkomandi félagsmaður að eiga um það sjálfur við Membership Department.
4. TRUE BLUE TICKET ONLY: Kr. 6.000.-
Forkaupsréttur að miðum eingöngu.
Þeir sem fylla þennan flokk eru sjálfkrafa þátttakendur í happdrætti sem Chelsea Football Club stendur fyrir en dregið verður mánaðarlega í því um veglega vinninga.
Börn & unglingar:
1. TRUE BLUE JUNIOR: Kr. 4.500.-
Forkaupsréttur að miðum, þá fá 12 ára og yngri Bridge Kids Magazine sent ársfjórðungslega og 13 ára og eldri Chelsea Magazine sent mánaðarlega. Allir félagsmenn í flokki barna og unglinga fá svo sendan gjafapakka sem inniheldur m.a. "Bootbag", Mini Chelsea fótbolta, geisladisk með efni úr herbúðum Chelsea o.fl.
Bridge Kids Magazine er glæsilegt tímarit, gefið út af Chelsea Football Club og höfðar sérstaklega til yngstu kynslóðarinnar, fullt af fréttum úr herbúðum Chelsea með viðtölum við leikmenn liðsins og myndum af þeim, skemmtilegum leikjum og getraunum alls konar.
Þá fer nafn viðkomandi félagsmanns í happdrættispott, "Junior Members Prize Draw" hjá CFC.
Athugið að stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi tekur enga ábyrgð á að Chelsea Magazine né Bridge Kids Magazine skili sér til viðkomandi eins og til er ætlast, verði einhver misbrestur þar á verður viðkomandi félagsmaður að eiga um það sjálfur við útgefendur.
Við nýskráningu í þennan flokk þarf að skila ljósriti af vegabréfi viðkomandi hvar nafn, fæðingardagur og ár kemur fram, eða ljósriti af fæðingarvottorði sem aldurssönnun en þessa er krafist af Chelsea Football Club.
Börn & unglingar teljast þeir er ekki hafa náð 16 ára aldri 1. ágúst 2012.
Bankareikningur:
1. Árgjaldið greiðist inn bankareikning Chelsea klúbbsins, 0701-26-3840, sem er í MP banka, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Kennitala:
1. Kennitala Chelsea klúbbsins er 690802-3840.
2. Gætið þess vel að kennitala umsækjanda komi fram við greiðslu árgjalds.
