Líkt og undanfarin keppnistímabil verður ekki um neitt opinbert samstarf Chelsea klúbbsins við flugfélög og/eða ferðaskrifstofur að ræða vegna ferða á leiki Chelsea á keppnistímabilinu 2011 / 2012 nema í undantekningartilfellum sem verða þá auglýst sérstaklega, bæði hér á Chelsea.is sem og með netpósti til félagsmanna, og með fréttabréfi verði því viðkomið.

Þess í stað hefur stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi samið að nýju við Chelsea hótelið,  "The Millennium & Copthorne Hotels at Chelsea Football Club", um kjör og kaup á svokölluðum "Matchday Packages" sem félagsmenn í Chelsea klúbbnum geta keypt fyrir tilstuðlan stjórnar Chelsea klúbbsins og fara upplýsingar þar að lútandi hér á eftir.

Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að samið verði við eitthvert flugfélagið eða ferðaskrifstofu um nánara samstarf á tímabilinu og verður það þá kynnt rækilega hér á Chelsea.is sem og með tölvupósti til félagsmanna. 

Í stuttu máli má segja að samningurinn við Chelsea hótelið tryggi félagsmönnum í Chelsea klúbbnum sem og ferðafélögum þeirra, að uppfylltum vissum skilyrðum, aðgang að gistingu á Chelsea hótelinu ásamt miðum á leiki með Chelsea á Stamford Bridge í tengslum við gistingu á Chelsea hótelinu hverju sinni. 

Þetta eru svokallaðir "Matchday Packages" sem margir kannast við og hafa jafnvel prófað nema hvað að nú geta félagsmenn valið um eina gistinótt, fyrir eða eftir leik, eða tvær gistinætur, fyrir og eftir leik eða báðar eftir leik, samkvæmt samningi þessum. Þá verður hægt að bæta við gistinótt/nóttum eftir atvikum, ýmist á undan eða eftir leikdag, og þá á föstu verðlagi eftir fjölda gesta í hverju tilfelli.

Chelsea hótelið tryggir samkvæmt samningi þessum Chelsea klúbbnum á Íslandi ákveðinn fjölda herbergja ásamt miðum á viðkomandi leiki Chelsea með möguleika á að bæta þar við, fer það eftir framboði og eftirspurn hverju sinni.

Chelsea klúbburinn mun innheimta kr. 500.- fyrir hvern félagsmann sem fær hótelpakka samkvæmt ofangreindu fyrir milligöngu stjórnar klúbbsins en kr. 1.000.- fyrir utanfélagsmenn og rennur gjald þetta í Minningar- & styrktarsjóð Chelsea klúbbsins á Íslandi.

Hér á eftir verður innihald samningsins tíundað ásamt verðskrá og skilyrðum, athugið að félagsmenn fá 10% af verði í afslátt í formi inneignar hjá Hótelinu eða Chelsea Megastore en gæta þarf þess að láta strauja félagsskírteinið við útskráningu á Hótelinu til að inneignin skili sér:


Chelsea klúbburinn á Íslandi & The Millennium & Copthorne Hotels at Chelsea Football Club, samningur:

  •  Ein gistinótt / tvær gistinætur á Chelsea hótelinu í tengslum við leiki Chelsea á Stamford Bridge .
  •  Þriggja rétta kvöldverður að kvöldi komudags, innifalið hálf flaska af víni hússins ásamt vatni, fyrir hvern gest.
  •  Enskur morgunverður á hverjum morgni dvalarinnar.
  •  Miði á viðkomandi leik (West Stand Upper, með fyrirvara um aðra staðsetningu).
  •  Leikskrá.

     

Verðskrá (athugið að verð miðast við herbergi þannig að verð á tveggja manna herbergjum deilist með tveimur og verð á þriggja manna herbergjum deilist með þremur til að fá út kostnað á hvern aðila:

  1. Úrvalsflokkur (Chelsea vs Arsenal, Liverpool & Manchester United), gist nótt fyrir leikdag eða gist nótt eftir leikdag:
  •  Eins manns herbergi = GBP 440.- / GBP 485.-
  •  Tveggja manna herbergi = GBP 590.- / GBP 635.-
  •  Þriggja manna herbergi = GBP 885.- / GBP 905.-

       2.  Úrvalsflokkur (Chelsea vs Arsenal, Liverpool & Manchester United), gist tvær nætur, fyrir
og á leikdegi eða á leikdegi og eftir leikdag:

  •  Eins manns herbergi = GBP 685.- / GBP 610.-
  •  Tveggja manna herbergi = GBP 845.- / GBP 770.-
  •  Þriggja manna herbergi = GBP 1.075.- / GBP 1.000.-

       3. Flokkur 1 (Chelsea vs Manchester City & Tottenham Hotspur), gist nótt fyrir leikdag eða gist nótt eftir leikdag:

  •  Eins manns herbergi = GBP 355.- / GBP 415.-
  •  Tveggja manna herbergi = GBP 505.- / GBP 555.-
  •  Þriggja manna herbergi = GBP 690.- / GBP 755.-

        4. Flokkur 1 (Chelsea vs Manchester City & Tottenham Hotspur), gist tvær nætur, fyrir og á leikdegi eða á leikdegi og eftir:

  •  Eins manns herbergi = GBP 520.- / GBP 455.-
  •  Tveggja mannaherbergi = GBP 680.- / GBP 615.-
  •  Þriggja manna herbergi = GBP 920.- / GBP 855.-

        5. Flokkur 2 (Chelsea vs Everton, Fulham & Queens Park Rangers), gist nótt fyrir leikdag eða nótt eftir leikdag:

  •  Eins manns herbergi = GBP 315.- / GBP 365.-
  •  Tveggja manna herbergi = GBP 455.- / GBP 505.-
  •  Þriggja manna herbergi = GBP 650.- / GBP 700.-

        6. Flokkur 2 (Chelsea vs Everton, Fulham & Queens Park Rangers), gist tvær nætur, fyrir og á leikdegi eða á leikdegi og eftir:

  •  Eins manns herbergi = GBP 465.- / GBP 400.-
  •  Tveggja manna herbergi = GBP 620.- / GBP 555.-
  •  Þriggja manna herbergi = GBP 845.- / GBP 780.-

        7. Flokkur 3 (Chelsea vs Blackburn Rovers, Newcastle United, Stoke City & Wigan Athletic), gist nótt fyrir leikdag eða nótt eftir leikdag:            

  •  Eins manns herbergi = GBP 260.- / GBP 315.-
  •  Tveggja manna herbergi = GBP 400.- / GBP 455.-
  •  Þriggja manna herbergi = GBP 590.- / GBP 645.-

        8. Flokkur 3 (Chelsea vs Blackburn Rovers, Newcastle United, Stoke City & Wigan Athletic), gist tvær nætur, fyrir og á leikdegi eða á leikdegi og eftir:  

  • Eins manns herbergi = GBP 380.- / GBP 360.-
  • Tveggja manna herbergi = GBP 535.- / GBP 515.-
  • Þriggja manna herbergi = GBP 740.- / GBP 705.-

        9. Flokkur 4 (Chelsea vs Bolton Wanderes, Norwich City, Stoke City, Sunderland, Swansea City, West Bromwich Albion & Wolverhampton Wanderes), gist nótt fyrir leikdag eða nótt eftir leikdag:

  • Eins manns herbergi = GBP 235.- / GBP 255.-
  • Tveggja manna herbergi = GBP 375.- / GBP 395.-
  • Þriggja manna herbergi = GBP 555.- / GBP 575.-

      10. Flokkur 4 (Chelsea vs Bolton Wanderes, Norwich City, Stoke City, Sunderland, Swansea City, West Bromwich Albion & Wolverhampton Wanderes), gist tvær nætur, fyrir og á leikdegi eða á leikdegi og eftir:

  • Eins manns herbergi = GBP 345.- / GBP 330.-
  • Tveggja manna herbergi = GBP 500.- / GBP 485.-
  • Þriggja manna herbergi = GBP 700.- / GBP 680.-

ATH: Á leik Chelsea gegn Aston Villa sem fram fer á gamlársdag 2011 eru sérstakir gamlárs/nýárspakkar í boði og eru þeir sem hér segir:

  • Ein gistinótt í 2ja manna herbergi = GBP 565.- (GBP 282,50 á mann).
  • Tvær gistinætur í 2ja manna herbergi = GBP 680.- (GBP 340.- á mann).

Innifalið í báðum þessum pökkum, auk gistingar, er fjögurra rétta Gala Dinner á 55 Restaurant undir Dinner Music, Welcome Drink, hálf flaska af víni hússins og vatnsflaska á mann, glas af kampavíni á miðnætti gamlársdags. Athugið að spariklæðnaður er æskilegur. Einnig er morgunverður innifalinn ásamt miða og leikskrá á leik Chelsea gegn Aston Villa.


Viðbótargjald vegna barns, tólf ára eða yngri, er GBP 130.- í einnar nætur pakka en GBP 155.- í tveggja nátta pakka, er þá reiknað með svo kölluðum Sleeping Sofa eða Roll On Bed.

Gjald fyrir aukanótt (þriðju nótt) er GBP 100.- á mann í eins manns herbergi, GBP 65.- á mann í tveggja manna herbergi og GBP 55.- á mann í þriggja manna herbergi.

Ef tekin er þriðja nótt aukalega er Stadium Tour innifalinn í aukagjaldi, er þó aldrei farinn á leikdegi.

Aðrar viðbótarnætur kosta hver nótt GBP 90.- á mann í eins manns herbergi, GBP 57.50 á mann í tveggja manna herbergi og GBP 46.- á mann í þriggja manna herbergi.

Takmarkað framboð er af eins manns og þriggja manna herbergjum.

Enn sem komið er er eingöngu um leiki Chelsea í Úrvalsdeildinni að ræða. Um leið og leikdagar og andstæðingarChelsea í bikarkeppnum og Meistaradeildinni liggja fyrir verður sambærilegum upplýsingum þar að lútandi komið á framfæri við félagsmenn í Chelsea klúbbnum á Íslandi.

Skilyrði:

Pantanir skulu berast Chelsea hótelinu minnst 35 dögum fyrir viðkomandi leik ásamt tryggingu fyrir greiðslu (greiðslukortanúmer o.s.frv.), berist pantanir eftir það verður ekki hægt að ábyrgjast að til móts við þær verði komið.

Ávallt skal að minnsta kosti einn félagsmaður í Chelsea klúbbnum, 18 ára eða eldri, vera um hvert herbergi og telst hann ábyrgur  samkvæmt samningi þessum gagnvart samningsaðilum og þeim reglum er gilda um gistingu á Chelsea hótelinu. Við innritun á Chelsea hótelið ber viðkomandi félagsmanni að framvísa félagsskírteini sínu ásamt vegabréfi.

Nafnalisti gesta hverju sinni skal hafa borist til Chelsea hótelsins og Chelsea Football Club eigi síðar en 14 dögum fyrir áætlaðan komudag.

Stjórn Chelsea klúbbsins á Íslandi mun svo hafa með nauðsynlega umsýslu vegna samnings þessa að gera, allar pantanir og annað er skipta kann máli, samkvæmt fyrrgreindu, mun stjórn Chelsea klúbbsins sjá um, t.d. taka við pöntunum, númerum greiðslukorta sem og nafnalistum gesta. 

Mun stjórn Chelsea klúbbsins sjá um að koma umbeðnum upplýsingum til Chelsea hótelsins en rétt er að ítreka þau tímamörk sem fram koma í samningi þessum varðandi staðfestingar á pöntunum sem og vegna nafnalista væntanlegra þátttakenda.

Hvað varðar flug til og frá London er það algjörlega undir hverjum og einum komið með fyrirkomulag og kostnað vegna þess en stjórnarmenn í Chelsea klúbbnum munu þó verða klúbbfélögum innan handar með pantanir á flugi sé þess óskað.

Ekki er útilokað að seinna meir verði samið við flugfélag/ferðaskrifstofu um þennan þátt en þangað til er bara að leita að hagstæðustu fargjöldum hverju sinni, hvort sem það er gert á Netinu eða með því að setja sig í samband við næstuferðaskrifstofu eða flugfélag!

Stjórn Chelsea klúbbsins vonast til að félagar í Chelsea klúbbnum sjái sér fært að sækja í auknum mæli leiki meðChelsea á Stamford Bridge, gista á Chelsea hótelinu og njóta þess sem þar er í boði. 

Þá skal á það bent að ef viðkomandi klúbbfélagi gætir þess að framvísa félagsskírteini sínu við uppgjör og útskráningu á Chelsea hótelinu getur það jafngilt allt að 10% afslætti, þó í formi inneignar í Chelsea Megastore eða þegar gist er á Chelsea hótelinu við önnur tækifæri.

Þó svo að verðlag frá því á s.l. keppnistímabili hafi hækkað gífurlega vegna gengishruns íslensku krónunnar verður samningur þessi vonandi til að styrkja enn frekar hið annars ágæta samband sem er á milli samningsaðila og efla samstarf þeirra í milli, Chelsea hótelið hefur stillt verðlagningu sinni í hóf ef tekið er tillit til verðlags síðasta tímabils og þeirrar staðreyndar að verðlag í Englandi hefur, ekki síður en á Íslandi, farið upp á við.

Í heildina má segja að um lækkun sé að ræða frá því á s.l. tímabili, í pundum talið og hjálpar þar til að nú er boðið upp á fleiri útfærslur þó svo eiginlegum verðflokkum hafi fækkað.

Allar nánari upplýsingar má svo fá í síma 864 6205 eða á netfangi chelsea.is@simnet.is