|
9. grein: Með stjórn félagsins fara:
a) Aðalfundur félagsins. b) Almennir félagsfundir. c) Stjórn félagsins.
10. grein: Aðalfundur Chelsea klúbbsins á Íslandi er æðsta vald félagsins og skal stjórn félagsins sjá svo um að samþykktir hans séu í heiðri hafðar. Aðalfund skal halda á tímabilinu september - nóvember ár hvert og til hans boða með minnst 7 daga fyrirvara á heimasíðu félagsins og með tölvupósti. Rétt til að sitja aðalfund hafa þeir félagsmenn er greitt hafa árgjald yfirstandandi starfsárs til félagsins við upphaf aðalfundar. Stjórn félagsins er heimilt að leyfa öðrum en fullgildum félagsmönnum að sitja aðalfund, mæli sérstakar ástæður með því, t.d. endurskoðendum félagsins komi þeir ekki úr röðum félagsmanna, gestum er eiga erindi við félagið, fulltrúum fjölmiðla o.s.frv. Þá hafa fulltrúar CFC rétt á að sitja aðalfund félagsins sem og aðra fundi þess.
Heimilt er að boða til framhaldsaðalfundar sé þess óskað af fundarheimi og fullgild rök færð fyrir slíku, þarf þá einfaldur meirihluti fundarmanna að samþykkja slíkt og skal fundartími og fundarstaður ákveðinn við sama tækifæri og til hans boðað með minnst sjö daga fyrirvara.
11. grein: Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
a) Kosning fundarstjóra. b) Skýrsla stjórnar vegna nýliðins starfsárs. c) Reikningar félagsins vegna nýliðins reikningsárs. d) Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins. e) Lagabreytingar. f) Kosning formanns. g) Kosning sjö stjórnarmanna. h) Kosning tveggja endurskoðenda. i) Kosning í laganefnd -Fundarheimur kýs tvo aðila í laganefnd og stjórn félagsins tilnefnir þann þriðja sem jafnframt skal vera formaður nefndarinnar. j) Önnur mál.
Formaður félagsins setur aðalfund og stýrir kjöri fundarstjóra. Formaður félagsins kynnir skýrslu stjórnar og gjaldkeri félagsins skýrir út reikninga þess. Ritari félagsins sér um að halda fundargerð. Formaður félagsins slítur fundi er dagskrá hefur verið tæmd.
Skriflegt samþykki þarf frá viðkomandi um setu í stjórn félagsins ef sá hinn sami situr ekki fundinn, sama gildir um endurskoðendur. Skal slíkt samþykki liggja fyrir við upphaf fundar.
12. grein: Starfsárið skal vera frá og með 1. júní ár hvert til og með 31. maí næsta ár, reikningsár skal fylgja starfsári. Félagsaðild gildir fyrir sama tímabil.
Starfstímabil stjórnarmanna, svo og endurskoðenda félagsins, er til eins árs í senn, sama gildir um aðra þá sem tilnefndir eru til starfa fyrir félagið.
13. grein: Allar breytingar er kunna að verða á stjórn á starfsári skal tilkynna skriflega til CFC svo fljótt sem auðið er.
14. grein: Almennir félagsfundir skulu haldnir a.m.k. tvisvar á ári. Til þeirra skal boðað með minnst 7 daga fyrirvara á heimasíðu félagsins, svo og með tölvupósti. Félagsmenn geta krafist þess að stjórn félagsins boði til almenns félagsfundar telji þeir brýna þörf á, þarf þá skriflegt samþykki fjórðungs fullgildra félagsmanna til. Er stjórn félagsins skylt að verða við slíkum kröfum berist henni þær og skal félagsfundur þá boðaður með löglegum fyrirvara á heimasíðu félagsins og með netpósti.
15. grein: Dagskrá félagsfunda skal ávallt auglýst með fundarboði. Formaður félagsins setur félagsfundi og skipar fundarstjóra. Ritari félagsins les fundargjörð síðasta félagsfundar sem skal árituð af stjórnarmönnum félagsins er viðstaddir voru til staðfestingar á fundargjörðinni. Formaður félagsins slítur fundi að lokinni dagskrá.
16. grein: Atkvæðisrétt á fundum félagsins hafa eingöngu fullgildir félagsmenn samkvæmt 6. og 10. grein. Þá hafa þeir og tillögurétt og málfrelsi. Aðrir fundarmenn hafa eingöngu tillögurétt og málfrelsi.
17. grein: Á fyrsta stjórnarfundi skiptir stjórn með sér verkum og skal kjörinn varaformaður, gjaldkeri og ritari. Jafnframt skal tilnefna menn í skemmtinefnd og rit- & heimasíðunefnd. Stjórnarfundir skulu haldnir eftir þörfum og sér formaður félagsins um boðun þeirra. Einfaldur meirihluti stjórnar getur krafist þess að boðaður sé stjórnarfundur og er formanni félagsins skylt að verða við slíku eins fljótt og auðið verður. Slíka kröfu skal leggja fram skriflega. Á stjórnarfundum gildir einfaldur meirihluti atkvæða. Standi atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. Stjórnarfundur telst því eingöngu löglegur að á hann séu mættir a.m.k. þrír stjórnarmenn. Stjórn félagsins fer með æðsta vald í málefnum þess á milli félagsfunda og sér um daglegan rekstur félagsins.
18. grein: Formaður félagsins og gjaldkeri hafa einir heimild til fjárhagslegra skuldbindinga í nafni félagsins en þó aldrei fyrir hærri upphæð en sem nemur 25% af tekjum þess hverju sinni. Samþykki stjórnar þarf fyrir öllum frekari fjárhagsskuldbindingum í nafni félagsins.
19. grein: Formaður félagsins skal tilkynna CFC um aðalfund félagsins, svo og um almenna félagsfundi, stað og stund, svo fljótt sem auðið er.
20. grein Stjórnarmenn skulu ávallt koma úr röðum félagsmanna. Heimilt er að ráða endurskoðendur utan raða félagsmanna, þá má og leita til utanfélagsmanna til að sinna fundarstjórn og öðrum störfum fyrir félagið, svo sem umsjón með heimasíðu þess.
|