Hvað í ósköpunum er  á seyði hjá Chelsea FC ?? 28-11-2010_0032_537.jpg

 

 


Pensionerinn einfaldlega skilur ekki hvað þeim mönnum sem stjórna þessu félagi gengur til...

Við erum meistarar og bikarmeistarar, við byrjuðum titilvörnina frábærlega og það var almennt talað um að Chelsea væri með eitt af þremur bestu liðum í heimi, sumir sögðu það besta... Enda var fótboltinn sem okkar menn spiluðu frábær svo ekki sé sterkara að orði komist... Sá flottasti fótbolti sem Chelsea lið hefur sýnt fyrr og síðar fullyrðir Pensionerinn...

En svo eins og hendi sé veifað þá molnar undan liðinu og allt virðist vera að fara til andskotans...  Það er svo greinlegt hver ástæðan fyrir þessari skyndilegu hnignun er, afskipti eigandans og hans nánustu hottintotta eru að eyðileggja allt það starf sem unnið hefur verið undanfarið... Þeir eru að skipta sér af starfi Ancelottis, hann fær ekki að kaupa þá leikmenn sem hann þarf til að styrkja liðið en honum fengnir leikmenn sem engin þörf er fyrir og auk þess í allt öðrum klassa en Chelsea liðið þarf á að halda. Sagt er að eigandinn og hans nánasta hirð séu að kaupa leikmenn, en Ancelotti fái engu um það ráðið...  

Kaupin á Ramires eru stórfurðuleg, hann er  svo lélegur að Pensionerinn  trúir því varla að það hafi verið borgað fyrir þennan gaur 18 milljónir punda... Benfica menn hljóta enn að vera hlægja sig máttlausa yfir þessar upphæð sem eigandinn og hans hirð borgaði fyrir kauða... Þetta er algjört hneyksli að mati Pensionerans..

Afsögn Frank Arnesen sem tilkynnt var í dag er sennilega enn einn naglinn í kistu Ancelottis...Þeirra samstarf var náið og þá hefur eigandanum tekist að hrekja tvo af nánustu samstarfsmönnum Ancelotti á brott... Eigandinn og hirð hans virðast grafa miskunarlaust undan stjóranum og Pensioneranum er það til efs að stjórinn lafi út leiktíðina satt best að segja...Pensionerinn hefur hlerað að  nú eigi að „læna“ upp Pep Guardiola frá Barcelona...Dettur einhverjum  heilvita manni eða konu í hug að gaur eins Guardiola hafi áhuga á að hlaupa frá liði eins Barcelona og í kjöltu manns eins og Romans sem virðist vera gjörsamlega óútreiknanlegur og miskunarlaus ef því er að skipta...    

Pensionerinn heldur að Roman hljóti að vera haldin hinu fræga Elvis/Jackson syndromi,  einangraður frá umheiminum,veruleikafirrtur og stjórnað af ráðgjöfum(afætum) svo fáránlega lítur þetta allt saman út fyrir Pensioneranum... Þó svo að maðurinn eigi félagið þá getur hann bara ekki hagað sér eins og hann vill án tillits við Pensionerann og alla hina stuðningsmennina....

Það að eigandinn  vellauðugi hafi  innleitt nýja tíma fyrir Chelsea FC og sannarlega glatt okkur stuðningsmenn á köflum undanfarin ár þá getur hann bara ekki hagað sér eins og engum komi við hvað hann gerir við klúbbinn okkar.. Hann þarf á OKKUR að halda! Án OKKAR er félagið ekki neitt, sama hversu mikla peninga hann á, eigandinn þarf að gera sér grein fyrir því...

Ef að eigandinn ætlar að reka okkar ástkæra félag á þann hátt að hann þurfi ekki að taka tillit til neins nema einhverjar þráhyggju í kollinum á honum og þeirrar náhirðar sem virðist vefja sig utan um hann þá gæti skaðinn orðið meiri en hann grunar...

Aðdáendur og fylgismenn klúbba hafa yfirleitt mjög mikið langlundargeð og það höfum við sem þykjumst vera eldri en tvævetra og fylgt Chelsea að málum fengið að kynnast í gegnum tíðina... Gefumst ekki svo auðveldlega upp...  Við munum aldrei snúa baki við Chelsea, einu sinni Chelsea alltaf Chelsea, blár að eilífu...

En eigandinn getur snúið baki við okkur og gert okkur lífið leitt ef að hann heldur að það sé hans hlutverk að stjórna félaginu og jafnvel sjálfu liðinu liðinu eins og um einhvern tölvuleik sé að ræða...

Jose Mourinho er besti þjálfari í heimi og er sannarlega kominn jafnfætis Sir Alex á toppnum en því miður þá virtist eigandinn ekki gera sér grein fyrir því og flæmdi Jose úr starfi en  í huga Pensionerans þá verður Jose „legend“ og mun  Pensionerinn aldrei gleyma honum...

Um þann sem tók við af Jose vill Pensionerinn helst ekki nefna  á nafn hér af virðingu við okkur öll,en honum var hent á haugana þegar hans hlutverki var lokið, eitthvað sem enginn gerir athugasemd við. Gott á West Ham að sitja uppi með hann eftir að hafa hirt hann upp af haugunum, enda er hann komin vel á veg að senda þá niður um deild...  

Næstu mistök eigandans voru að ráða Scolari sem stjóra en hann réð ekki við verkefnið eins og allir muna og á haugunum lenti hann einnig...  

Þá brá eigandinn á það ráð að ráða tímabundið til starfans Guus Hiddink sem reyndar var skjólstæðingur eigandans en var bara í öðru verkefni fyrir hann og reddaði Hiddink málunum af stakri snilld það tímabilið... En ekki hafði hann áhuga á starfinu enda þekkir hann sennilega vinnubrögð eigandans of vel til að hafa látið sér detta það í hug að þiggja djobbið...

Þá var Carlo Ancelotti frábær þjálfari með góða ferilsskrá og annálaður séntilmaður  fenginn til starfans og það þarf ekki að minna neinn á hvaða þrekvirki hann vann... Hann vinnur deild og bikar og liðið setti allskonar met sem seint verða slegin og liðið spilaði frábæran fótbolta... Hvað er hægt að biðja um meira?...

Ekki veit Pensionerinn það,en það virðist vera þráhyggja ein sem heldur vöku fyrir eigandanum dag og nótt allt árið um kring... Þráhyggjan um að sigra Meistaradeildina virðist rugla eigandann svo í ríminu að hann gerir sér ekki grein fyrir því að afskipti hans af liðinu valda því að Chelsea hefur ekki enn unnið Meistaradeildina...

Skoðun Pensionerans er sú ef að hann hefði ekki flæmt Jose úr starfi á sínum tíma hefðum við unnið þessa blessuðu Meistaradeild í Moskvu. Eigandinn klúðraði því „big time“, hann einn ber ábyrgð á því fíaskói...

Og nú þegar liðið var til alls líklegt þá virðist ballið vera byrjað aftur, eigandinn  farin að hringla í liðinu og staffinu... Eitt er víst að við munum ekki sigra í þessari Meistaradeild eða nokkurri annari deild eða bikar ef því er að skipta, ef að eigandinn ætlar að stjórna liðinu með því að troða sínum hugmyndum um fótbolta upp á Ancelotti...  

Nú berast þær fréttir að eigandinn hafi ákveðið að sýna stuðning sinn við Ancelotti og sent honum sms eftir leikinn gegn Birmingham sem sagði eitthvað á þá leið: " When the team play good football, Roman is happy" Sér er hver stuðningurinn segi ég bara ef þetta er rétt og hljómurinn frekar falskur... Afhverju fer maðurinn bara ekki fund þjálfarans og segir honum augnliti til auglitis að héðan í frá fái hann þann stuðning sem hann þarf ?? Samskiptin geta varla orðið kuldalegri en þetta, að nota sms til að tala saman...

Nú fer mikilvægur tími í hönd fyrir liðið.. Margir stórleikir framundan og nauðsynlegt að stjórinn verði  látinn í friði við að reyna að koma liðinu á réttan kjöl og koma liðinu aftur í eina áhugaverða sætið í Úrvalsdeildinni, toppsætið... 

 

Pensionerinn kveður  í bili... Over and out !!