Petr Cech
Nr leikmanns: 1
Staða: Markvörður

Petr Cech

Petr Cech kom til Chelsea sumarið 2004 og hefur vægast sagt slegið í gegn. Hann byrjaði á því að slá Carlo Cudicini út úr liðinu og var það ekkert grín því Cudi var allra besti markvörður Englands tímabilið áður. Hann lét það ekki nægja heldur sló hann met Peter Schmeichels yfir lengsta tímann án þess að fá á sig mark. Meira

Henrique Hilario
Nr leikmanns: 40
Staða: Markvörður

Henrique Hilario

Þegar Hilario kom til Chelsea í fyrrasumar til að verma bekkinn hafði hann sennilega enga hugmynd um það að í sama leiknum myndu báðir markverðirnir sem á undan honum voru, lenda í langtímameiðslum. Það gerðist samt sem áður og honum var ýtt fram í sviðsljósið og fékk hann að standa milli stanganna í 18 leikjum áður en hinir urðu heilir. Hann stóð sig með heilmiklum ágætum í deild, bikar og Meistaradeild. Meira

Ross Turnbull
Nr leikmanns: 22
Staða: Markvörður

Ross Turnbull

Turnbull kom mjög á óvart þegar hann kom til Chelsea því hann sagði við Middlesbrough að hann vildi ekki framlengja samning sinn við félagið því hann vildi fá byrjunaliðssæti sem þeir gátu ekki lofað honum. Það er klárt mál að hann mun ekki fá fast sæti í byrjunaliði Chelsea á meðan að Cech er á mála hjá klúbbnum. Meira

John Terry
Nr leikmanns: 2326
Staða: Miðvörður

John Terry

Þvílíkur leiðtogi, þvílíkur leikmaður!!! John Terry er, eins og allir vita, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins. Þessi drengur hefur allt sem til þarf til að slá í gegn og það hefur hann svo sannarlega gert. Og ekki skemmir að hann er uppalinn Chelsea-maður. Meira

Alex
Nr leikmanns: 33
Staða: Miðvörður

Alex

Alex Rodrigo Dias da Costa hóf atvinnumannsferil hjá því sögufræga félagi Santos í Brasilíu árið 2002 tvítugur að aldri. Chelsea tryggði sér piltinn 2004 að ráði Piets de Visser sem hefur getið sér gott orð fyrir að finna efnilega leikmenn. Hins vegar fékk Alex ekki atvinnuleyfi á Englandi strax og var lánaður til PSV Eindhoven í Hollandi. Í lánssamningnum var kveðið á um að Chelsea gæti keypt hann á eina evru tveimur árum síðar. Meira

David Luiz
Nr leikmanns: 4
Staða: Miðvörður

David Luiz

David Luiz Moreira Marinho fæddist þann 22. apríl árið 1987 í borginni Diadema, Sao Paulo, sunnarlega í Brasilíu. Hann hóf reglulegar æfingar níu ára að aldri og þá með heimaliði sínu, Sao Paulo. 14 ára gamall var hann svo sendur til liðs við Vitória, en þeir eru þekktir fyrir magnað unglingastarf. Í byrjun spiilaði hann sem varnarsinnaður miðjumaður en stóð sig svo illa í þeirri stöðu að þjálfarar Vitória voru næstum því búnir að reka hann. Þeir gáfu honum þó fyrst tækifæri í hjarta varnarinnar og þar stóð hann sig heldur betur. Meira

Branislav Ivanovic
Nr leikmanns: 2
Staða: Hægri bakvörður

Branislav Ivanovic

Það var ekki laust við að ýmsir lyftu brúnum þegar Chelsea splæsti í janúar 2008 9,7 milljónum punda í lítt þekktan serbneskan varnarmann, Branislav „Bane“ Ivanović, sem var á mála hjá Lokomotiv í Moskvuborg. Þegar svo fréttist að piltur gæti hvort sem er leikið í stöðu hægri bakvarðar eða miðvarðar, auk þess að vera liðtækur sem varnartengiliður, fóru menn að velta fyrir sér hvort þarna væri kominn arftaki Ferreira og Bellettis í þeirri stöðu sem var talin veikasti hlekkurinn í annars firnasterku liði. Meira

Jose Bosingwa
Nr leikmanns: 17
Staða: Hægri bakvörður

Jose Bosingwa

Heldur fjölgaði Portúgölunum hjá Chelsea í sumar við komu Decos og hægri bakvarðarins José Bosingwa eða Boss eins og sumir spjallverjar á enskum orðhákasíðum kalla hann. Bosingwa fæddist portúgölskum föður og kongóskri móður í Kinshasa í Lýðveldinu Kongó þar sem miðvallarkletturinn og fyrrverandi Chelsea-kappinn Claude Makelele var einnig í heiminn borinn 9½ ári fyrr. Meira

Paulo Ferreira
Nr leikmanns: 19
Staða: Hægri bakvörður

Paulo Ferreira

Paulo Ferreira kom, eins og Carvalho, með Mourinho frá Porto sumarið 2004. Hann hafði unnið UEFA bikarinn og Meistaradeildina með Stjóranum og José treysti honum nóg til þess að henda 13 milljónum punda til Portúgal fyrir hann. Ferreira tók byrjunarliðssætið strax af Glen Johnson og sýndi fljótt hvers vegna Stjóranum líkar svona vel við hann. Meira

Ashley Cole
Nr leikmanns: 3
Staða: Vinstri bakvörður

Ashley Cole

Ashley Cole átti nokkuð erfitt uppdráttar í liði Chelsea á sínu fyrsta leiktímabili. Colegate málið varð til þess að illt bragð var í munni stuðningsmanna Arsenal og varla þarf að rifja upp ásakanirnar sem gengu á milli Chelsea og Gallas áður en leikmaðurinn fékk loksins að fara. Cole átti góða leiki hér og þar en datt svo niður reglulega. Erfitt er að segja hvort hann hafi verið hlekkjaður af knattspyrnustíl Mourinhos en hann var í það minnsta langt frá því að vera upp á sitt besta og lengi vel heimtuðu stuðningsmenn Chelsea að sjá Wayne Bridge í stöðu hans þar sem Bridge var að sýna ágætisleik þegar hann fékk tækifæri. Meira

John Obi Mikel
Nr leikmanns: 12
Staða: Miðjumaður

John Obi Mikel

Sagan um John Obi Mikel er vægast sagt dularfull. Vorið 2005 skrifaði hann undir það sem flestir myndu kalla draumasamning við Manchester United, þá leikmaður hjá Lyn í Noregi. Hann var nýorðinn 18 ára og framtíðin blasti við honum en síðar þetta sama sumar kom hann fram og sagði að hann hafi verið þvingaður til að skrifa undir hjá United og hann vildi fyrir alla muni fara til Chelsea. Meira

Michael Essien
Nr leikmanns: 5
Staða: Miðjumaður

Michael Essien

Michael Essien var dýrasti leikmaður í sögu Chelsea þegar hann kom til félagsins sumarið 2005. 24.4 milljónir punda eru endurspeglun á þrjósku forseta Lyon, og frábærri frammistöðu hans í Meistaradeildinni með liðinu. Drengurinn var 22 ára Ghanabúi en talaði fullkomna ensku og var staðráðinn í að koma til Chelsea eftir að hann frétti af áhuga félagsins. Meira

Ramires
Nr leikmanns: 7
Staða: Miðjumaður

Ramires

Ramires fæddist í Rio de Janeiro og hóf feril sinn hjá Joinville. Joinville er þekkt fyrir það eitt að Ramires er þaðan. Hann spilaði eitt tímabil með aðalliði Joinville, 2006-2007, og skoraði hann 3 mörk í 14 leikjum. Meira

Florent Malouda
Nr leikmanns: 15
Staða: Sóknarmaður

Florent Malouda

Þegar Florent Malouda kom til Chelsea var ljóst að José Mourinho ætlaði að endurlífga kantspilið sem var svo glæsilegt á hans fyrsta tímabili með félagið. Malouda er fjórfaldur franskur meistari með Lyon og hann spilaði í silfurliði Frakka á HM 2006. Hann er mjög sterkur í fyrirgjöfum og getur sett eitt og eitt mark sjálf Meira

Frank Lampard
Nr leikmanns: 8
Staða: Miðjumaður

Frank Lampard

"Súper Frankie Lampard!!!" er sungið á Brúnni í hvert sinn sem þessi snillingur gerir eitthvað sniðugt. Það er ekkert smástökk sem drengurinn hefur tekið síðan hann kom frá West Ham sumarið 2001 fyrir 11 milljónir punda. Á þeim tíma þótti mönnum þetta vera allt of hátt verð og "Lamps" gerði ekki margt til að sannfæra menn um annað á sínu fyrsta tímabili. Meira

Didier Drogba
Nr leikmanns: 11
Staða: Sóknarmaður

Didier Drogba

Didier Drogba var nánast óþekktur leikmaður fyrir tímabilið 2003-2004 þegar hann var fremstur í víglínu Marseille sem tapaði úrslitaleik UEFA bikarsins gegn Valencia. Eftir að hafa verið í vandræðum með að brjótast inn í toppdeildina í Frakklandi í nokkur ár náði hann samningi við Marseille eftir að hafa skorað 17 mörk fyrir Guingamp. Meira

Daniel Sturridge
Nr leikmanns: 23
Staða: Sóknarmaður

Daniel Sturridge

Sturridge byrjaði ferillinn hjá Aston Villa, þaðan fór hann til Coventry City 2002, ári síðar (2003) fór hann svo til Manchester City, þá aðeins 13 ára. Sturridge var í sigurliði City sem vann Nike Cup undir 15-ára heimsmót þar sem hann varð markahæstur og valinn besti maður tímabilsins. Meira

Nicolas Anelka
Nr leikmanns: 39
Staða: Sóknarmaður

Nicolas Anelka

Í janúar 2008 voru bæði Didier Drogba og Salomon Kalou á leið á Afríkumótið og frá keppni með Chelsea í margar vikur. Var þar skarð fyrir skildi því að Claudio Pizarro og Andriy Shevchenko voru þá einu miðframherjarnir í hópi Avrams Grant. Líklega hefur Grant ekki verið einn um að álíta að eitthvað vantaði upp á sóknarþungann. Það var því drifið í því að kaupa franska flökkuframherjann Nicolas Anelka frá Bolton þar sem hann hafði staðið sig vel og verið nokkuð iðinn við markaskorun. Meira

Fernando Torres
Nr leikmanns: 9
Staða: Sóknarmaður

Fernando Torres

Fernando Torres, eða El Nino, var dýrasti leikmaður í sögu Chelsea og Englands og fjórði dýrasti leikmaður allra tíma þegar hann gekk til félagsins á 50 milljónir punda á seinasta degi janúarmánaðar 2011. Kaupin vöktu gríðarlega athygli út um gervalla veröld enda er Torres talinn vera einn allra besti framherji sem um getur og eru fáir sem standast honum snúning, bæði innan- sem og utanvallar. Ástæða hans fyrir skiptunum er einföld: Hann vill vinna medalíur og titla! Meira

Nr leikmanns:
Staða:

Lánsmenn 2011-2012


Jeffrey Bruma
Nr leikmanns: 43
Staða: Miðvörður

Jeffrey Bruma

Bruma getur bæði spilað sem miðvörður og hægri bakvörður. Hann spilar þó oftast sem miðvörður með varaliðinu og tel ég líklegt að hann eigi eftir að festa sig betur í sessi þar, þegar fram líða stundir. Hann er afar traustur og sterkur leikmaður og gerir sjaldan mistök, en auk þess hefur hann mikinn hraða, sem gerir honum kleift að kljást við sprettharða framherja. Meira

Yossi Benayoun
Nr leikmanns: 10
Staða: Miðjumaður

Yossi Benayoun

Benayoun getur bæði spilað á köntunum sem og á miðri miðju en honum líður best í sem frjálsustu stöðu framarlega á miðjunni, beint fyrir aftan framherjann. Hann hefur afar góðan leiksskilning og gott auga fyrir spili en besta lýsingin, að mínu áliti, af honum eru orð Alan Pardews: „He opens the door when teams sit deep Meira