Alex
Númer: 33
Þjóðerni: Brasilía
Staða: Miðvörður
Hæð: 188 sm
Fæðingardagur: 17. júní 1982
Keyptur: Frá PSV Eindhoven á 1 evru
Landsleikir: 27 (til 13. mars 2008).
Alex Rodrigo Dias da Costa hóf atvinnumannsferil hjá því sögufræga félagi Santos í Brasilíu árið 2002 tvítugur að aldri. Chelsea tryggði sér piltinn 2004 að ráði Piets de Visser sem hefur getið sér gott orð fyrir að finna efnilega leikmenn. Hins vegar fékk Alex ekki atvinnuleyfi á Englandi strax og var lánaður til PSV Eindhoven í Hollandi. Í lánssamningnum var kveðið á um að Chelsea gæti keypt hann á eina evru tveimur árum síðar.
Það gerðist hins vegar ekki og hann var á mála hjá PSV eina leiktíð í viðbót. Ekki verður annað sagt en að bikarauppskeran hafi verið góð hjá Alex í Hollandi því að með PSV vann hann hollenska meistaratitilinn þrisvar í röð og reyndar hollenska bikarinn líka fyrsta árið sitt. Auk þess ávann hann sér viðurnefnið „Skriðdrekinn“ vegna marka sem hann skoraði með fallbyssuskotum langt utan af velli. Margir minnast líka skallamarksins sem sló Arsenal út úr Meistaradeildinni leiktíðina 2005-2006.
Það var svo loks í ágúst 2007 að evran var greidd og Alex kom heim – á Stamford Bridge – og var samningur hans við Chelsea til þriggja ára. Ekki bjuggust margir við því að pilturinn fengi marga leiki því að erfitt mundi reynast að velta þeim John Terry og Ricardo Carvalho úr sessi í miðju varnarinnar. Enda byrjaði Alex rólega, kom inn á fyrir Florent Malouda á 85. mínútu í þriðja deildarleik tímabilsins, gegn Liverpool á Anfield. En brátt fór hann að fá tækifæri í byrjunarliðinu því að bæði Terry og Carvalho meiddust. Ekki var drengur sannfærandi í fyrstu, andstæðingarnir fóru stundum fullauðveldlega framhjá honum og hann greip til þess ráðs að brjóta klaufalega af sér. En honum óx ásmegin eftir því sem á leið og hann varð brátt líkur þeim Alex sem menn þekktu frá PSV, það er að segja sterkur og traustur miðvörður sem hleypti fáum framhjá sér.
Fyrsta mark sitt fyrir Chelsea gerði Alex úr aukaspyrnu gegn Middlesbrough á Riverside, þrumufleygur af 30 metra færi og gaf hann þar í engu eftir landa sínum, hinum sverlæraða Roberto Carlos. Hann gerði svo annað dúndurmark úr aukaspyrnu í 4:0 sigri á Rosenborg í Þrándheimi og það þriðja í hinu alræmda 4:4 jafntefli við Aston Villa á Stamford Bridge á annan í jólum; tók reyndar nettan þríhyrning við Andriy Shevchenko í vítateignum áður en hann renndi boltanum í netið. Sannur Brasilíumaður þar á ferð.
Allt í allt lék Alex 38 leiki á sinni fyrstu leiktíð með Chelsea, fleiri en bæði Terry og Carvalho, og var 31 sinni í byrjunarliðinu. Er það til marks um mikilvægi hans fyrir liðið.
Þrátt fyrir þessa góðu frammistöðu byrjar yfirstandandi leiktíð rólega hjá Alex Rodrigo Dias da Costa. Í þeim þremur leikjum, sem búnir eru þegar þetta er skrifað, hefur hann mátt sætta sig við að sitja á bekknum án þess að koma inn á.
Enginn vafi leikur þó á því að piltur mun fá að spreyta sig í vetur því að ef eitthvað er að marka undanfarnar leiktíðir verður að telja harla ólíklegt að Terry og Carvalho sleppi báðir ómeiddir í gegnum heilt tímabil. Vonandi fáum við þá að sjá „Skriðdrekann“ miða fallbyssunni og tæta netmöskvana hjá andstæðingunum á milli þess sem hann stöðvar sóknir þeirra.
Ferill hjá Chelsea Leikir Sem varamaður Mörk
2007-2008 38 7 3
