Númer: 3acole.jpg
Þjóðerni: England    
Staða: Vinstri bakvörður
Hæð: 172 sm. 
Fæðingardagur: 20. desember 1980 
Keyptur: Frá Arsenal fyrir 5 milljónir punda auk William Gallas sumarið 2006
Landsleikir: 82 (1)  (til 18. desember 2009).

 


 Ashley Cole átti nokkuð erfitt uppdráttar í liði Chelsea á sínu fyrsta leiktímabili. Colegate málið varð til þess að illt bragð var í munni stuðningsmanna Arsenal og varla þarf að rifja upp ásakanirnar sem gengu á milli Chelsea og Gallas áður en leikmaðurinn fékk loksins að fara. Cole átti góða leiki hér og þar en datt svo niður reglulega. Erfitt er að segja hvort hann hafi verið hlekkjaður af knattspyrnustíl Mourinhos en hann var í það minnsta langt frá því að vera upp á sitt besta og lengi vel heimtuðu stuðningsmenn Chelsea að sjá Wayne Bridge í stöðu hans þar sem Bridge var að sýna ágætisleik þegar hann fékk tækifæri.

Veturinn 2007-2008 skoraði Cole fyrsta mark sitt fyrir Chelsea en var að öðru leiti meira af því sama. Hann spilaði einum leik meira en fyrsta tímabilið, eða 41 og náði ekki að heilla aðdáendur liðsins nóg til að verðskulda sætið ítrekað framyfir Bridge. Það virðist vanta hraðann og hungrið sem hann hafði hjá Arsenal og ljóst er að ef hann tekur ekki á honum stóra sínum undir stjórn Scolaris.

Ashley Cole hefur að undanförnu verið að sýna frábæra spilamennsku og virðist vera kominn í sama form og hann var í hjá Arsenal. C. Ronaldo hefur sagt að Ashley Cole sé erfiðasti varnamaður sem hann mætir.  Það er vegna hraðans sem Cole býr yfir sem er ekki algengt hjá varnarmönnnum.


Ferill hjá Chelsea:                  Leikir                Sem varamaður                              Mörk                   _________

2006-2009                                 149                               6                                            4

 


Ashley Cole í fréttum:

-A.Cole klár í slaginn 24.feb.´07