Branislav Ivanović
Númer: 2
Þjóðerni: Serbía
Staða: Varnarmaður
Hæð: 187 sm.
Fæðingardagur: 22. Febrúar 1984
Keyptur: Frá Lokomotiv Moskva í janúar 2008 fyrir 9,7 milljónir punda.
Landsleikir: 28 , 4 mörk (til 17. desember 2009)
Það var ekki laust við að ýmsir lyftu brúnum þegar Chelsea splæsti í janúar 2008 9,7 milljónum punda í lítt þekktan serbneskan varnarmann, Branislav „Bane“ Ivanović, sem var á mála hjá Lokomotiv í Moskvuborg. Þegar svo fréttist að piltur gæti hvort sem er leikið í stöðu hægri bakvarðar eða miðvarðar, auk þess að vera liðtækur sem varnartengiliður, fóru menn að velta fyrir sér hvort þarna væri kominn arftaki Ferreira og Bellettis í þeirri stöðu sem var talin veikasti hlekkurinn í annars firnasterku liði.
Þegar tíminn leið og frumraun Ivanović í aðalliðinu lét á sér standa tóku kenningasmiðir við sér og ýmsar getgátur fóru á kreik um ástæðuna fyrir því að Serbinn hefði verið keyptur. „Peningaþvætti,“ sögðu sumir (þótt erfitt sé að ímynda sér að maður, sem talinn er eiga 11 til 12 milljarða punda, þurfi að „þvo“ smáaura eins og tæpar 10 millur). „Roman er að redda einhverjum vini sínum,“ sögðu aðrir en aldrei tókst þó að leiða þann „vin“ fram í dagsljósið.
Opinbera skýringin, sú einfaldasta og jafnframt sú sennilegasta, var að Ivanović væri einfaldlega ekki í leikæfingu þar sem keppni lauk í rússnesku deildinni nokkrum mánuðum áður en félagaskiptin fóru fram.
Branislav Ivanović hóf feril sinn 2002 hjá FK Srem í heimaborg sinni, Sremska Mirovica í Serbíu. Þaðan fór hann til til OFK í höfuðborginni Belgrad ári seinna, lék þar í þrjú ár en var svo seldur til Lokomotiv 2006.
Með Moskvuliðinu lék Ivanović 54 leiki á einu og hálfu ári og gerði 5 mörk. Hann vann rússneska bikarinn með Lokomotiv 2007.
Á árunum 2004–2007 lék Ivanović 33 landsleiki og gerði 4 mörk með U-21 liði Serbíu sem komst meðal annars í úrslit í Evrópukeppninni 2007 en beið ósigur fyrir gestgjöfunum, Hollendingum.
Ivanović lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Serbíu í vináttuleik gegn Ítölum sem fram fór í Toronto í Kanada. Hann er nú fastamaður í liðinu og leikur í stöðu miðvarðar við hlið Nemanja Vidić, leikmanns Manchester United.
Sumarið 2008 var hægri bakvörðurinn Jose Bosingwa keyptur og orðrómur fór á kreik um að Ivanović væri á förum frá Chelsea, sennilega til AC Milan til þess að lækka meðalaldurinn á vörninni þar á bæ. Chelsea var þó ekki á þeim buxunum að láta hann fara og tók hann þátt í undirbúningnum fyrir yfirstandandi leiktímabil. Hann lék nokkra leiki á æfingaferðalaginu til Asíu og Rússlands og stóð sig vel. Sú frammistaða dugði þó ekki til þess að hann fengi tækifæri í upphafi leiktímabils. Það var ekki fyrr en 24. september, í deildabikarleik í Portsmouth, að Ivanović var kallaður til og fékk hann að spreyta sig í stöðu hægri bakvarðar. Skemmst er frá því að segja að hann stóð sig afbragðs vel í leik sem vannst 4:0.
Næsta tækifæri kom svo í deildarleik gegn Aston Villa á Stamford Bridge þar sem Ivanović tók stöðu miðvarðar við hlið Johns Terry í forföllum Ricardos Carvalho og Alex. Pilturinn steig ekki feilspor og hafði norska lurkinn John Carew í vasanum.
Þrátt fyrir þessa frammistöðu þá var Ivanović látinn verma varamannabekkinn, einfaldlega vegna þess hve vel mönnuð vörn Chelsea er. Því má halda fram með nokkrum rökum að miðverðir Chelsea séu öfundarefni flestra ef ekki allra liða í heimi: John Terry, Ricardo Carvalho og Alex auk Branislav Ivanović. Þá er liðið heldur ekki á flæðiskeri statt með hægri bakverði: José Bosingwa, Paulo Ferreira og Juliano Belletti.
Branislav Ivanović hefur svo sýnt frábæra spilamennsku undir stjórn Ancelotti og erfitt verður fyrir José Bosingwa að taka stöðuna sína aftur. Hægri bakvarðarstaðan hefur ekki litið svona vel út í langan tíma en hún hefur oft verið talin veikasti hlekkurinn í vörn Chelsea. Ivanović hefur sýnt með framistöðu sinni að hann ætlar sér langt, kæmi ekki á óvart að hann yrði meðal þeirra bestu í heimi innan bráðar. Eftir skallamörkin tvö á Anfield í Meistaradeildinni 2009 þá hafa aðdáendur Chelsea farið að halda meira og meira uppá þennan sterka varnarmann.
