Daniel Sturridge
Númer: 23
Þjóðerni: England
Staða: Sóknarmaður
Hæð: 178 sm.
Fæðingardagur: 1. september 1989
Keyptur: Frá Manchester City 3. júlí 2009 fyrir óákveðna upphæð
Landsleikir: 15 (til 3. janúar 2010)
Sturridge byrjaði ferillinn hjá Aston Villa, þaðan fór hann til Coventry City 2002, ári síðar (2003) fór hann svo til Manchester City, þá aðeins 13 ára. Sturridge var í sigurliði City sem vann Nike Cup undir 15-ára heimsmót þar sem hann varð markahæstur og valinn besti maður tímabilsins.
3.júlí 2009 gerði hann fjögurra ára samning við Chelsea þar sem samningurinn við City var runninn út. Þar sem leikmaðurinn var ekki orðinn 24 ára þá gat hann ekki farið á frjálsri sölu. Liðin hafa ekki komið sér saman um verð en City vildi 10 milljónir punda en Chelsea vilda aðeins borga 3 milljónir, líklegt er að endanleg tala verði í kringum 6 milljónir.
Daniel Sturridge hefur sýnt að hann getur spilað í hæsta gæðaflokki fótboltans. Það verður gaman að fylgjast með þessum leikmanni þróast. Þar sem Drogba og Kalou fara í Afríkukeppnina þá er mögulegt fyrir Sturridge að sýna hvað í honum býr. Vonandi verður framtíð hans björt á Brúnni.
Ferill hjá Chelsea: Leikir Sem varamaður Mörk
2009-2010 8 6 2
