David Luiz
Númer: 4
Þjóðerni: Brasilía
Staða: Varnarmaður
Hæð: 185 sm.
Fæðingardagur: 22. apríl 1987
Keyptur: Frá Benfica í janúar 2011 fyrir 25 milljónir punda
Landsleikir: 5 leikir (til 18/2’11)
Brasilíumaðurinn gekk til liðs við Chelsea undir lok janúargluggans árið 2011 eftir miklar samningaviðræður og margar blaðafyrirsagnir. Kaupin höfðu legið í loftinu í þónokkurn tíma og féllu eflaust í skuggann á öllu Torres ævintýrinu. Samt sem áður afar góð kaup.
David Luiz Moreira Marinho fæddist þann 22. apríl árið 1987 í borginni Diadema, Sao Paulo, sunnarlega í Brasilíu. Hann hóf reglulegar æfingar níu ára að aldri og þá með heimaliði sínu, Sao Paulo. 14 ára gamall var hann svo sendur til liðs við Vitória, en þeir eru þekktir fyrir magnað unglingastarf. Í byrjun spiilaði hann sem varnarsinnaður miðjumaður en stóð sig svo illa í þeirri stöðu að þjálfarar Vitória voru næstum því búnir að reka hann. Þeir gáfu honum þó fyrst tækifæri í hjarta varnarinnar og þar stóð hann sig heldur betur.
Tímabilið 2006/2007, þá 19 ára gamall, varð hann svo byrjunarliðsmaður hjá Vitória. Með góðri frammistöðu vakti hann mikla athygli víðsvegar um heim og fór það svo að Benfica fengu hann að láni í nokkra stund og voru síðan fljótir að festa kaup á kappanum. Á árunum 2007 til 2011 spilaði Luiz 82 leiki fyrir Benfica og skoraði í þeim fjögur mörk. Hann spilaði bæði sem vinstri bakvörður og miðvörður og var árið 2010 valinn besti leikmaður portúgólsku deildarinnar. Að auki var hann valinn í brasilíska landsliðið og spilaði sinn fyrsta leik fyrir þá gegn Bandaríkjunum þann 10. ágúst 2010.
Chelsea festi loks kaup á honum fyrir 25 milljónir punda þann 31. janúar 2011. Ljóst er að hér á ferð er einn efnilegasti varnarmaður á Englandi og það sem við höfum séð af honum er allt mjög gott. Luiz sagði um leið og hann gekk til liðsins að markmiðið væri að ná byrjunarliðssæti sem fyrst. Hann var ekki lengi að ná því og það sem meira er, áhangendur Chelsea eru virkilega ánægðir með hann og er Luiz strax orðinn vinsæll á meðal þeirra.
Luiz á Youtube (http://www.youtube.com/watch?v=ZZVGqi539No)
