Didier Drogbadrogba.jpg

Númer: 11

Þjóðerni: Fílabeinsströndin

Staða: Sóknarmaður

Hæð: 188 sm.

Fæðingardagur: 11. mars 1978

Keyptur: Frá Marseille sumarið 2004 á 24 milljónir punda

Landsleikir:   42 leikir  30 mörk (til 10.ágúst  2008).

 

Didier Drogba var nánast óþekktur leikmaður fyrir tímabilið 2003-2004 þegar hann var fremstur í víglínu Marseille sem tapaði úrslitaleik UEFA bikarsins gegn Valencia. Eftir að hafa verið í vandræðum með að brjótast inn í toppdeildina í Frakklandi í nokkur ár náði hann samningi við Marseille eftir að hafa skorað 17 mörk fyrir Guingamp. Marseille keyptu hann á 3.3 milljónir og ári síðar var ávöxtunin ótrúleg. Yfir 20 milljóna punda gróði þegar Mourinho ákvað að þetta ætti að verða aðalsóknarmaður okkar og maðurinn sem verðskuldaði að hljóta titilinn:”Dýrasti leikmaður í sögu Chelsea”.

Það eru mjög skiptar skoðanir um fyrrverandi metkaup Chelsea. Eftir stórkostlegt tímabil með Marseille þar sem hann tapaði í úrslitaleik UEFA bikarsins festi Mourinho kaup á drengnum fyrir 24 milljónir punda. Hann skoraði 16 mörk fyrir Chelsea á sínu fyrsta tímabili en var samt talinn vonbrigði af mörgum stuðningsmönnum og íþróttafréttariturum. Það má sjálfsagt deila um það að þegar maður er með menn eins og Duff og Robben í kringum sig ætti maður að geta skorað meira. Drogba átti þó í nárameiðslum í október og nóvember á sínu fyrsta tímabili og virtist aldrei komast almennilega í gang eftir það. Hann ávann sér orðspor fyrir að vera fljótur og sterkur hjá Marseille en oft á tíðum hjá Chelsea hefur hann verið frekar seinn og átt í erfiðleikum með að hafa stjórn á boltanum.

 Hann fékk það hlutverk hjá Mourinho að massa sig í gegnum varnir og það tókst oft á tíðum vel í leikjum. Hann byrjaði sitt annað tímabil með pompi og prakt þegar hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri á Arsenal í Samfélagsskyldinum og svo aftur með eina marki leiksins í deildarleik 2 vikum síðar. Það varð þó lítið úr í heildina og hann endaði aftur með 16 mörk.

Í hvert sinn sem hann stóð sig vel, kvartaði hann yfir gagnrýni sem hann fékk frá stuðningsmönnum og vorið 2006 var hann farinn að hjala um það að hann gæti verið á leið til AC Milan eða eitthvert þar sem stuðningsmenn kynnu að meta hann. Hann fór svo á HM og leiddi Fílabeinsströndina þar án mikils árangurs. Hann hefur alla tíð verið umkringdur óánægjuröddum og honum finnst hann alltaf vera vanmetinn. Það má með sanni segja að samband Drogba við stuðningsmenn Chelsea er stormasamt en ef hann mætir til leiks og setur mörkin er öllu gleymt. 

2006-2007, þegar Shevchenko kom til Chelsea fór drengurinn svo í gang. Hann skoraði 33  mörk í 60 leikjum og var það meira en nokkur leikmaður hjá ensku liði afrekaði. Svo virtist vera að Drogba var ekki lengur í hlutverki vinnuhests hjá Mourinho og hann gat einbeitt sér að því að láta Sheva líta illa út með því að skora mörk í öllum regnbogans litum. Það er erfitt að ímynda sér að Chelsea hefði verið með í öllum keppnum fram á síðustu vikur ef hans hefði ekki notið við.

Menn hreinlega neyddust til að fyrirgefa honum fyrstu tvö tímabilin og baráttan um leikmann ársins á Englandi var á milli hans og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United. Ekki hlaut okkar maður þann titil og það kom svo verulega á óvart að hann hlaut titilinn ekki einu sinni hjá Chelsea. Michael Essien var kosinn leikmaður ársins hjá Chelsea eftir að hafa fórnað sér í margar stöður fyrir liðið allan veturinn. En Drogba stóð sig betur en nokkur hefði getað vonað.

Á síðasta tímabili datt hann svo aftur niður í meiðsli og vælukjóaskap. Þegar Mourinho yfirgaf herbúðir Chelsea fréttist nánast samdægurs að Drogba hafi aldrei liðið vel hjá félaginu og væri bara að bíða eftir tækifærinu til að yfirgefa það. Í allt sumar hafa menn bendlað hann og Lampard við Inter, þar sem Mourinho er nú við störf en mikið hægara hefur verið um hann en Lampard og stór spurning hvort menn hafi áhuga á svona prímadonnu til sín. 

Allt bendir til þess að leikmaðurinn verði áfram hjá Chelsea um sinn en eftir "aðeins" 15 mörk í 32 leikjum á síðasta tímabili er ljóst að Drogba þarf að fara að einbeita sér aftur að fótboltanum ef hann ætlar sér að vekja hrifningu annarra liða. 

Ferill hjá Chelsea                       Leikir                 Sem varamaður            Mörk

 

2004-2007                                      174                          32                              80

 

 


-Drogba á YouTube

Á http://www.didierdrogba.com/  segir Drogba frá öllu sem er að gerast hjá honum og mælir meira að segja með veitingastöðum og alls kyns tækjum sem honum finnst sniðug og svona.