Florent Malouda 
Númer: 15
Þjóðerni: Frakkland
Staða: Kantmaður
Hæð: 181 sm.
Fæðingardagur: 13. júní 1980.
Keyptur: Frá Lyon fyrir 13.5 milljónir sumarið 2007
Landsleikir: 30 (3) 3 mörk (til 8. ágúst 2007).
Þegar Florent Malouda kom til Chelsea var ljóst að José Mourinho ætlaði að endurlífga kantspilið sem var svo glæsilegt á hans fyrsta tímabili með félagið. Malouda er fjórfaldur franskur meistari með Lyon og hann spilaði í silfurliði Frakka á HM 2006. Hann er mjög sterkur í fyrirgjöfum og getur sett eitt og eitt mark sjálfur.
Það rættist ekki mikið úr drengnum á hans fyrsta tímabili á Englandi og sannfæring José Mourinho um að hann væri kjörinn til að aðlagast ensku deildinni var vitleysa. Hann var allt of linur á boltanum og hreinlega massaður af boltanum oftar en ekki. Það sást annað slagið glitta í það sem hann getur en mikið vantar upp á sjálfstraustið hjá honum til að hann geti orðið að lykilmanni hjá félaginu.
Mjög skiptar skoðanir eru meðal spjallverja hér á chelsea.is um það hvort leikmaðurinn geti tekið sig saman í andlitinu og verið dýrmætur spili liðsins en það verður að koma í ljós á þessu tímabili annars verður honum skilað áður en 2 ára ábyrgðin er útrunnin.
Ferill hjá Chelsea: Leikir sem varamaður mörk
2007-2008 38 9 4
