Frank Lampard Franklamp.jpg
Númer: 8 
Þjóðerni: England 
Staða: Miðjumaður 
Hæð: 183 sm. 
Fæðingardagur: 20. júní 1978 
Keyptur: Fyrir 11 milljónir frá West Ham sumarið 2001 
Landsleikir: 61 (10) 15 mörk (til 10. ágúst  2008)     U-21: 16  8 mörk. 

"Súper Frankie Lampard!!!" er sungið á Brúnni í hvert sinn sem þessi snillingur gerir eitthvað sniðugt. Það er ekkert smástökk sem drengurinn hefur tekið síðan hann kom frá West Ham sumarið 2001 fyrir 11 milljónir punda. Á þeim tíma þótti mönnum þetta vera allt of hátt verð og "Lamps" gerði ekki margt til að sannfæra menn um annað á sínu fyrsta tímabili.

Ranieri hlýtur þó að hafa séð eitthvað í drengnum og lét hann spila án þess að hlusta á gagnrýnisraddir. Spólum áfram um 7 ár. Frank Lampard er búinn að gerast Englandsmeistari þrisvar, hann er síðustu 5 tímabil búinn að vera besti miðjumaður Bretlandseyja og þó víðar væri leitað. Hann hefur spilaði flesta leiki í röð í sögu efstu deildar (stórkostlegt afrek í svona sterkum hópi), hann var markahæsti leikmaður Chelsea á meistaratímabilunum tveimur, hann vann öll einstaklingsverðlaun nema þau einu sem Terry vann (auk íslensku verðlaunanna) árið 2006, hann er nánast aldrei meiddur, hann tæklar, skorar, skallar, verst........... Hann er einfaldlega Super Frank. Fleiri orðum kemur maður bara ekki að. Horfið bara á næsta leik og þetta útskýrir sig sjálft.

Lampard hefur líka verið valinn besti leikmaður enska landsliðsins 2004 og 2005 þó að HM 2006 hafi reynst honum eriftt eins og öllum leikmönnum enska liðsins.

Hann byrjaði tímabilið vel og varafyriliðinn fékk svo fyrirliðabandið þegar Terry var meiddur og leiddi liðið áfram með stórkostlegum mörkum, oft á ögurstundu. Ekki slæmur varafyrirliði þetta! Hann skorar alltaf yfir  20 mörk á tímabili. Frankie Lampard er lýst af Mourinho sem eini leikmaður liðsins sem hann myndi aldrei skipta á fyrir einhvern annan.

Mjög sterkur orðrómur hefur verið uppi í sumar um að José Mourinho myndi lokka leikmanninn yfir til Mílanóborgar með sér og oft á tíðum hafa menn gefið upp vonina um að halda honum og kannski bara viljað fá eitthvað fyrir hann fyrst að samningur hans rennur út næsta sumar en allt bendir til þess að Super Frank ætli að tryggja sér enn einn Englandsmeistara og sinn fyrsta Evrópumeistaratitil áður en hann yfirgefur félagið. Það er náttúrulega líka hægt að halda í vonina um það að hann skrifi undir nýjan samning en í bili viljum við bara meira af því saman takk.

Lampard á YouTube

Ferill hjá Chelsea                    Leikir                      Sem varamaður               Mörk 
2001-2008                                  369                                21                                  110